- What: Man arrested after assault
- Impact: Local crime incident
Innlent | mbl | 15.4.2026 | 23:55 Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Gabríel Douane og félagi hans voru að brasa með þvott þegar lögreglu bar að garði. Samsett mynd/Lögreglan/mbl.is/Eggert Setja bókamerki Gabríel Douane Boama hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 6. maí en hann er grunaður um tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulega líkamsárás sem átti sér stað 5. mars. Tveir grímuklæddir menn spörkuðu þá upp útidyrahurð í íbúð manns sem þar var staddur ásamt kærustu sinni og réðust að honum, annar með hnífi en hinn með öxi, en brotaþoli bar kennsl á Gabríel sem annan þeirra. Á hann að hafa lamið manninn með öxinni í höfuðið svo hann hlaut nokkra skurði á höfði, þar á meðal djúpan skurð á gagnauga. Frétt af mbl.is Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Hélt að verið væri að drepa hann Í skýrslutöku sagði kærasta mannsins að hún hafi heyrt þegar útidyrahurðinni var sparkað upp og í kjölfarið séð hvernig hurðin að herbergi þeirra hafi verið „tætt með vopnum“, eins og það er orðað í úrskurðinum. Hún kvaðst hafa séð tvo grímuklædda menn ráðast á kærasta sinn, annar hafi notað öxi en hinn verið að „slice-a“ með hnífnum. Hún sagðist halda að verið væri að drepa kærasta hennar. Gabríel og félagi hans voru handteknir um nóttina í stigagangi fjölbýlishúss, þar sem þeir voru skólausir á leið upp úr kjallaranum og sögðust hafa verið að slaka á í sameigninni. Lögregla veitti því athygli að þvottavél var í gangi um miðja nótt og lagði hald á fatnaðinn í vélinni og tvo bakpoka sem fundust við húsleit, en brotaþoli hafði greint frá því að öxin hefði verið sett í bakpoka eftir árásina. Hnífstunga í febrúar Gabríel neitaði að tjá sig í skýrslutöku. Hann var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 5.–12. mars, síðan í áframhaldandi gæsluvarðhald frá 12. mars – 9. apríl og loks frá 9. apríl til 6. maí. Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald var kærður en Landsréttur staðfesti úrskurðinn 14. apríl. Fallist var á kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, þar sem fyrir lá rökstuddur grunur um brot sem varðar fangelsisrefsingu, og c-liðar 1. mgr. 95. gr., þar sem talin var hætta á áframhaldandi brotastarfsemi. Dómurinn taldi að rökstuddur grunur væri um aðild hans að mjög alvarlegu ofbeldisbroti, tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulegri líkamsárás, sem geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Dómurinn vísaði jafnframt til langvarandi brotaferils Gabríels, nær óslitið frá árinu 2021, fjölmargra refsidóma, meðal annars vegna ofbeldisbrota, og þess að hann lauk nýlega afplánun 3. febrúar en hafi síðan tvívegis verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Þá liggi hann undir grun um fleiri alvarleg brot, meðal annars hnífstungu í febrúar, og hafi haldið áfram brotastarfsemi þrátt fyrir nýlegan dóm. Talið var að hann myndi að óbreyttu halda áfram brotastarfsemi yrði hann látinn laus. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Hótar að sökkva bandarískum herskipum Þrjú skip farið í gegn, eða ekkert „Helst mögulega í hendur við árangur og skemmtanagildi“ „Þá geta góðir hlutir gerst“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Hótar að sökkva bandarískum herskipum Þrjú skip farið í gegn, eða ekkert „Helst mögulega í hendur við árangur og skemmtanagildi“ „Þá geta góðir hlutir gerst“ Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Loftbrú breytt peninganna vegna Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn