- What: Increase in pickpocketing at tourist sites
- Impact: Tourists and locals in southern Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 2.5.2026 | 7:20 Vasaþjófarnir snúnir aftur Þekkt er að vasaþjófar herji á fjölfarna ferðamannastaði en þjóðgarðsvörður segir vasaþjófnaðinn til marks um vöxt íslenskrar ferðaþjónustu. Mbl.is/Eggert Jóhannesson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Lögreglan á Suðurlandi hefur mælt aukinn vasaþjófnað í grennd við ferðamannastaði á undanfarinni viku að sögn aðalvarðstjóra. Grunur leikur á að þar á ferð séu hópar glæpamanna sem komið hafa til landsins gagngert til þess að stunda vasaþjófnað, en slíkir hópar hafa sótt að Gullna hringnum undanfarin ár. Þjóðgarðsvörður við Þingvallaþjóðgarð segir landverði hafa tekið eftir bylgju vasaþjófnaðar við þekktustu ferðamannastaði landsins og segir atvikin til marks um breyttan veruleika ferðaþjónustunnar. Glæpahópar að utan Blaðamaður sló á þráðinn í gær til þjóðgarðsvarðarins Einars Á.E. Sæmundsen til þess að spyrja hann út í þjófnaðarhrinuna, en þá hafði Einar nýlokið við að senda lögreglu gögn vegna vasaþjófnaðar sem átt hafði sér stað í hádeginu. „Það hefur verið einhver vasaþjófnaðarbylgja í gangi á Suðurlandi enn og aftur síðustu vikuna,“ segir hann. Tilkynnt hafi verið til þjóðgarðsvarða um vasaþjófnað á Þingvöllum í gær og fyrradag, auk þess sem fleiri mál hafi verið tilkynnt til lögreglu án milligöngu þjóðgarðsins. „Við eigum sem betur fer í virku og góðu samstarfi við lögreglu.“ Í ágúst síðastliðnum greindi Morgunblaðið frá því að mörg þeirra glæpagengja sem herjað höfðu á ferðamannastaði með vasaþjófnaði virtust hafa horfið af landi brott eftir tveggja ára leiðindadvöl, en Einar segir aðra bylgju vasaþjófnaðar hafa hafist strax um haustið. „Það voru nokkur gengi einhvern tíma síðla í október sem höfðu meðal annars viðkomu hér, á Geysi og við Gullfoss, og svo hafa þeir komið hingað með reglulegu millibili í allan vetur.“ Oft séu margir þjófar saman á ferð þó einungis einn eða tveir sjái um stuldinn sjálfan, þar sem hinir fylgist gjarnan með og stýri aðgerðinni. Einar segir starfsfólk þjóðgarðsins á Þingvöllum vel vakandi fyrir vasaþjófnaði og hvetur þá sem lenda í þjófunum til þess að tilkynna atvikin strax. „Við höfum sett upp myndavélakerfi og skilti til þess að minna á þetta og það er mjög þarft að minna ferðaþjónustuna á að vera vakandi fyrir þessu. Þetta er bitur og leiðinlegur raunveruleiki sem við erum að fást við, að skipulagðir glæpahópar komi að utan og geri út á þennan þjófnað.“ Neikvætt þroskamerki Spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að atvikin kunni að sverta ímynd Þingvalla í augum ferðamanna segir Einar þær áhyggjur ekki miklar, enda viðbúið að fjölsóttir ferðamannastaðir séu vinsæl skotmörk vasaþjófa. „Auðvitað er það leiðinlegt að fá á sig þetta orðspor, fyrst um að hér sé mikið af ferðamönnum og svo þegar bætist við að það sé það mikið af ferðamönnum að vasaþjófar sjái uppgrip í að koma hérna. En þetta þekkist um allan heim þar sem ferðamenn koma saman í hópum. Þar er þessi hætta alltaf til staðar,“ segir hann. „Þetta er í rauninni neikvætt þroskamerki ferðaþjónustunnar.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vasaþjófarnir snúnir aftur Hefur gaman okkar gránað? Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Héldu upp á 100 ára afmæli Elísabetar Bretlandsdrottningar Ofbeldisfullir á hvaða aldri sem er Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óska eftir börnum í hálftóma leikskóla Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Neitar að klæðast skotheldu vesti eftir banatilræði Mest lesið Í gær Í vikunni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kostir og gallar við ESB-aðild Sendu út mikið viðbragð: Reyndist falskt boð Útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Bensínverð lækkar um 11% Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Farfuglar koma fyrr til landsins Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Vasaþjófarnir snúnir aftur Hefur gaman okkar gránað? Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi Héldu upp á 100 ára afmæli Elísabetar Bretlandsdrottningar Ofbeldisfullir á hvaða aldri sem er Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furðumál minnir á ábyrgð Alþingis „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Herjólfur III verður klár í næstu viku Stríðsátökum Bandaríkjanna og Írans teljist lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kostir og gallar við ESB-aðild Sendu út mikið viðbragð: Reyndist falskt boð Útspil Sósíalistaflokksins mælist misvel fyrir Bensínverð lækkar um 11% Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Farfuglar koma fyrr til landsins Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás