Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Klerkastjórnin heldur uppteknum hætti við aftökur andófsfólks og meintra njósnara

Read Full Article →

Tveir karlmenn voru líflátnir í Íran í morgun eftir að hafa verið dæmdir sekir um aðild að MEK, ólöglegri andófshreyfingu, og fyrir margs konar hryðjuverkaaðgerðir sem miðuðu að því að steypa klerkastjórninni. Frá þessu er greint á vef Mizan, fréttastofu íranska dómskerfisins. Fjórir dæmdir liðsmenn MEK voru teknir af lífi fyrr í vikunni. Hreyfingin studdi klerkabyltinguna árið 1979 en leiðtogar hennar hafa verið í útlegð frá því skarst í odda á níunda áratugnum. Írönsk stjórnvöld skilgreina MEK sem hryðjuverkasamtök. Mannréttindasamtök segja Íran koma næst Kína í fjölda líflátsdóma og framkvæmd þeirra. Frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu stríðsrekstur gegn Íran hefur fjöldi fólks verið líflátinn , þar á meðal maður sem var sakfelldur fyrir samstarf við ríkin tvö meðan á fjölmennum mótmælum stóð fyrr á árinu. Jafnframt var dauðadómi framfylgt yfir þremur mönnum sem sakfelldir voru fyrir dráp á lögreglumanni í mótmælunum ásamt því sem sænsk-íranskur maður, Kouroush Keyvani , var líflátinn fyrir að njósna fyrir Ísrael. Sænsk stjórnvöld og ríki Evrópusambandsins fordæmdu Írani harðlega fyrir það.

Share this article