Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslenska heyrist á öðru hverju götuhorni

Read Full Article →

Margir Íslendingar sækja í að komast í sólina yfir páskana og miðað við brottfarir frá Keflavíkurflugvelli fara flestir þeirra til Tenerife, en alls voru 56 flugferðir þangað fyrir páskana. Það er mjög mikið af Íslendingum á eyjunni og maður fann það strax fyrir viku síðan, bara fyrir helgina þá allt í einu bara fylltist allt,“ segir Herdís Hrönn Árnadóttir, vert á Nostalgiu - íslenska barnum á Tenerife. „Maður finnur það þegar maður labbar hérna um göturnar að það er töluð íslenska hérna á öðru hverju horni.“ Samkvæmt upplýsingum frá Isavia virðast langflestir þeirra sem eru á faraldsfæti yfir páskana hafa tekið stefnuna á sólina á Kanaríeyjum; fyrir páskana voru 45 flug til Tenerife og 11 til Gran Canaria. Herdís segir að fjöldinn hafi aukist ár frá ári. „Í byrjun var bara flogið einu sinni í viku, svo tvisvar í viku og nú er þetta bara á hverjum degi.“ Töluvert sé um að stórfjölskyldur fari saman í frí. Á barnum er dagskrá alla páskana og eitthvað fyrir alla. „Í dag erum við með páskabingó og þá fáum við mikið af fjölskyldum á öllum aldri sem keppast um að vinna sér inn páskaegg frá Íslandi sem eru flutt hér handfarangri,“ segir Herdís Hrönn. Á hlýrabol úti á palli og hugsar hlýlega til Íslands Veðrið hefur þó ekki leikið við fólk á eyjunni að undanförnu. Í lok mars voru gefnar út appelsínugular veðurviðvaranir fyrir Tenerife. „Aumingja fólkið sem var hérna þegar stormurinn Theresa reið hérna yfir í 10 daga. Þá var bara rigning og rok,“ segir Herdís Hrönn. Nú er sólin aftur á móti farin að skína. „Ég er bara hérna á hlýrabol, sit hérna úti á palli. Ég hugsa fallega til ykkar. Vorið hlýtur að vera að koma hjá ykkur.“

Share this article