Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einn handtekinn fyrir að munda hníf og annar fyrir slagsmál

  • What: Man arrested with knife and another for a fight in Reykjavík
  • Impact: Local residents
Read Full Article →

Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV Lögreglumenn handtóku mann vopnaðan hnífi í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt og annan sem stóð þar í slagsmálum og var til vandræða eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sá þriðji var handtekinn í miðbænum fyrir hótanir í garð meðborgara sinna. Maður var fjarlægður úr Kringlunni sökum ölvunar og óvelkomnum manni vísað úr húsnæði í vesturborginni. Húsráðandi í Efra-Breiðholti fékk aðstoð lögreglu til að koma brott gesti sem hann átti í vandræðum með og maður var handtekinn í Grafarvogi fyrir hótanir og vörslu fíkniefna.

Share this article