Erlent | Morgunblaðið | 5.4.2026 | 13:16 Fjarveran áhyggjuefni Norðmenn telja faraldurinn hafa markað vatnaskil. mbl.is/Karítas Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi Hafa loks yfirsýn yfir börn á skólaskyldualdri Leggja niður kennslu í einum árgangi Borgin hættir að veita nemendum verðlaun » Fleiri tengdar fréttir „Heimsfaraldrinum er lokið. Sendið börnin í skólann.“ Svo hljóðar fyrirsögn norska dagblaðsins Aftenposten sem hefur undanfarnar vikur fjallað um skólaforðun í Noregi sem hefur orðið æ stærra vandamál innan norska menntakerfisins. Er heimsfaraldurinn sagður hafa markað vatnaskil í þeim efnum en í kjölfar hans eru foreldrar sagðir mun linari við að senda börnin sín í skólann en á árum áður. Tilefnið til að halda þeim heima verður sífellt minna og dagarnir sem börn missa úr skóla verða sífellt fleiri, segir norska dagblaðið. Samkvæmt úttekt Menntamálastofnunar Noregs á skólaforðun í norskum grunnskólum voru nemendur í 10. bekk að meðaltali fjarverandi í níu daga og átta kennslustundir á síðasta skólaári. Það er einum degi og einni kennslustund meira en skólaárið 2022-2023, og þremur dögum og þremur kennslustundum meira en fyrir heimsfaraldurinn. Þá voru 18% norskra nemenda í 10. bekk á síðasta skólaári fjarri í minnst 20 daga af árinu. Aftenposten segir tölurnar mikið áhyggjuefni en fjarvera nemenda úr grunnskólum hefur aldrei mælst jafn mikil meðal nemenda í 10. bekk. „Ef það reynist rétt að þessi kórónuveiruár hafi haft þau áhrif að nú sættum við okkur við að börn verji minni tíma í skólum og meiri tíma heima, verðum við að bregðast við og binda enda á þá þróun,“ segir í greininni. Missa af vikum og mánuðum Skólaforðun lýsir sér í meðvitaðri eða ómeðvitaðri hegðun sem barn eða unglingur sýnir þegar mæta á í skólann. Hegðunin birtist í erfiðleikum með að sækja skóla hvort sem það er hluta úr degi, í ákveðnar kennslustundir eða til lengri eða skemmri tíma. Í alvarlegri tilfellunum missa sumir nemendur af heilu vikunum og jafnvel mánuðum. En svo eru mildari tilfelli, þar sem nemendur mæta reglulega í skólann – en þó alls ekki jafn oft og áður. Trude Tvedt, skólastjóri í Bratsbergkleiva-grunnskólanum í Skien, telur þörf á samfélagslegri umræðu um þessa þróun. Í viðtali við Aftenposten beinir Tvedt ekki kastljósinu að börnum sem forðast að mæta í skólann vegna alvarlegra líkamlegra eða andlegra kvilla, eða vegna þess að þau eru lögð í einelti. Hún telur mikilvægt að samfélagið og skólar virði slík tilfelli. Það sé ekki einfaldlega hægt að segja við nemendur með mjög krefjandi vandamál og greiningar að „mæta bara í skólann“. Tvedt vill aftur á móti draga verulega úr óþarfa fjarveru úr skólum. Sem dæmi nefnir hún þegar börn eru einn dag í viðbót heima eftir að hafa náð sér upp úr veikindum, þegar hálfur dagur er tekinn í frí vegna tannlæknatíma eða þegar barnið fær að vera heima á föstudögum þegar foreldrarnir vinna heima. Það sem skólastjórinn kallar milda fjarveru, sem telur þó þegar hún fer að safnast saman. Hún rekur þetta meðal annars til þeirra breytinga sem urðu á samfélaginu þegar covid-19-faraldurinn gekk yfir og miklar samkomutakmarkanir voru í gildi. Faraldrinum fylgdi sveigjanleiki í starfi hjá mörgum og fólk vandist því að vinna heima. Með þessu hafi hugarfarið gagnvart því að vinna heima breyst, og í dag leyfi foreldrar börnum sínum í auknum mæli að sleppa skóla og vera bara heima að læra – eða bara ekki. Tvedt telur að foreldrar sjái ekki lengur mikilvægi þess að börnin þeirra verji sem mestum tíma í skólanum. Hún segist leggja áherslu á þetta á öllum fundum sem hún á með foreldrum, sem kunna jafnvel að reiðast þessari beinskeytni. Sumir spyrja á móti hvort skólastjórnendum hugnist frekar að vera með veika nemendur í kennslustofunni. „Auðvitað viljum við það ekki. En ef barn er með vægan höfuðverk um morguninn þá ætti það að geta mætt í skólann með miða um að það geti farið heim ef hann versnar.“ Hún ítrekar að alvarlegri vandamál séu auðvitað undanskilin þessu. Hún vilji einfaldlega vita hvaða skilaboð foreldrar séu að senda börnunum sínum. „Barn gæti upplifað að skólinn sé ekki það mikilvægur ef foreldrar þeirra leyfa þeim að vera heima.“ Stórt vandamál hér heima fyrir Skólaforðun barna er einnig stórt vandamál í íslenskum grunnskólum og virðist fara vaxandi. Sigrún Harðardóttir, dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir ári að dæmi væru um börn í fyrsta bekk sem mættu ekki í skólann í lengri tíma. Þá væru einnig dæmi um börn sem hefðu ekki mætt í tvö ár. Sagði hún kennara, skólastjórnendur og fagfólk upplifa úrræðaleysi í málaflokknum, og að vandinn væri lítið rannsakaður hér á landi. Foreldrar sem Morgunblaðið hefur rætt við hafa sömuleiðis lýst óánægju með að börn geti ekki mætt í kennslustundir, eða heilu skóladagana, vegna forfalla meðal kennara eða framkvæmda á skólabyggingum. Ein móðirin lýsti því í viðtali við mbl.is í nóvember að dóttir hennar hefði misst úr 30 kennslustundir á þremur mánuðum vegna forfalla kennara. Enn nýlegra dæmi er síðan í Ölduselsskóla en þar hefur mikið rask orðið á skólastarfi vegna framkvæmda. Hyggst borgin ekki bæta börnunum upp þann tíma sem þeir hafa misst úr. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi Hafa loks yfirsýn yfir börn á skólaskyldualdri Leggja niður kennslu í einum árgangi Borgin hættir að veita nemendum verðlaun » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vélsleðamenn lentu í ánni Komu saman opinberlega í fyrsta sinn frá handtöku Andrew Fjarveran áhyggjuefni Fyrsta tap Sveindísar á tímabilinu „Opnið helvítis sundið“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Sífellt fleiri Íslendingar velja sykurskertar hátíðarblöndur Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmanninum bjargað Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana Vill enduropna eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna Fjórtán ára stúlka í lífshættu Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Íranar ráðast á mikilvæga innviði Afturkallaði dvalarleyfi frænku fallins leiðtoga Þýskir karlmenn þurfa leyfi til lengri dvalar erlendis Artemis-áætlunin: Nálgast tunglið Valdatíð Orbans mögulega á enda „48 klukkustundir eftir áður en allt fer til fjandans“ Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Valdatíð Orbans mögulega á enda Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Afturkallaði dvalarleyfi frænku fallins leiðtoga Fjórtán ára stúlka í lífshættu Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Óvenjuleg vandamál geimfaranna Mímir áminntur: Hótaði Vítisenglum Hersveitir keppast við að finna manninn Segir ummæli Trumps um eiginkonuna ekki svaraverð Elísabet varaði Harry við „48 klukkustundir eftir áður en allt fer til fjandans“ Biður hershöfðingja að hætta og fara á eftirlaun Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Pam Bondi vikið úr embætti Flugmanninum bjargað Nýjast á mbl.is » Vélsleðamenn lentu í ánni Komu saman opinberlega í fyrsta sinn frá handtöku Andrew Fjarveran áhyggjuefni Fyrsta tap Sveindísar á tímabilinu „Opnið helvítis sundið“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Falast eftir meira landi í Kópavogi Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Mest lesið Í gær Í vikunni Flugmanninum bjargað Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana Vill enduropna eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna Fjórtán ára stúlka í lífshættu Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Íranar ráðast á mikilvæga innviði Afturkallaði dvalarleyfi frænku fallins leiðtoga Þýskir karlmenn þurfa leyfi til lengri dvalar erlendis Artemis-áætlunin: Nálgast tunglið Valdatíð Orbans mögulega á enda „48 klukkustundir eftir áður en allt fer til fjandans“ Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Valdatíð Orbans mögulega á enda Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Afturkallaði dvalarleyfi frænku fallins leiðtoga Fjórtán ára stúlka í lífshættu Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Óvenjuleg vandamál geimfaranna Mímir áminntur: Hótaði Vítisenglum Hersveitir keppast við að finna manninn Segir ummæli Trumps um eiginkonuna ekki svaraverð Elísabet varaði Harry við „48 klukkustundir eftir áður en allt fer til fjandans“ Biður hershöfðingja að hætta og fara á eftirlaun Ákærður fyrir að hafa selt konu sína 120 mönnum Önnur bandarísk orrustuþota skotin niður Svara Trump: Allt breytist í helvíti fyrir ykkur Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Pam Bondi vikið úr embætti Flugmanninum bjargað