Innlent | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 17:47 Leggja niður kennslu í einum árgangi Nemandi Leggja þarf niður kennslu í einum árgangi sökum húsnæðisskorts. Skammtímalausnir hafa í of langan tíma þrengt að starfinu. Morgunblaðið/Hari Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Minni væntingar, minni árangur » Fleiri tengdar fréttir Nemendur í 3. bekk í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði fá ekki að halda áfram í skólanum næsta skólaár þar sem leggja þarf niður kennslu fyrir 4. bekk sökum húsnæðisvanda. Hildur Sæbjörg Jónsdóttir, önnur skólastýra barnaskólans, segir ákvörðunina rosalega sársaukafulla en hún hafi því miður verið óhjákvæmileg. „Okkur þykir þetta mjög leitt,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. Stjórnendur skólans hafa lengi átt í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ um lausn á húsnæðisvandanum. Fyrir mánuði hafi þó legið fyrir að ekki yrði bætt úr honum fyrir næsta skólaár og því þyrfti að leggja niður kennslu fyrir síðasta árgang skólans. Í tölvupósti skólans sem barst foreldrum barna fyrr í mánuðinum segir að húsnæði barnaskólans ásamt færanlegum kennslustofum rúmi með góðu móti 120 börn. Í dag séu aftur á móti 132 börn í skólanum, öll rými fullnýtt og engin rými laus til að mæta sértækum þörfum og/eða í aðra kennslu. Nú liggi fyrir umsóknir 148 barna og verður ekki hægt að taka á móti þeim öllum. „Það hefur verið húsnæðisvandi og það hefur verið þrengt að okkur í langan tíma, en við höfum samt sem áður vaxið enn hraðar síðustu tvö, þrjú ár, og bráðabirgðalausnirnar sem við höfum verið að grípa til eru líka komnar að þolmörkum,“ segir Hildur. „Það er ekki hægt að standa fyrir því að öryggi barna verði ekki tryggt á næsta skólaári en við erum mjög nálægt þeim þolmörkum í dag. Það er okkar skylda sem skólasamfélag að tryggja góða líðan og öryggi með besta móti.“ Skekkja í kynjahlutföllum Í póstinum til foreldra segir enn fremur að skólastjórnendur hafi staðið frammi fyrir svipuðum vanda fyrir fjórum árum og var þá gripið til skammtímalausna með færanlegum kennslustofum. „Nú eru liðin fjögur ár og færanlegu kennslustofurnar farnar að láta á sjá og bílastæðavandinn farinn að aukast verulega. Þar af leiðandi eru fleiri skammtímalausnir ekki lausn fyrir komandi skólaár. Það er aldrei óskastaða að geta ekki annað eftirspurn en til að öryggi sé tryggt og þörfum barna sé mætt með besta móti þá er það óhjákvæmilegt að hafna hluta umsókna,“ segir í póstinum. Skammtímalausnir hafi í of langan tíma þrengt verulega að bæði börnum og starfsfólki. Þannig hafi á þessu skólaári öll skrifstofurými verið nýtt sem námsver/kennslustofur stærstan part dagsins. Fyrirkomulagið hafi neikvæð áhrif á bæði líðan barna og starfsfólks. Ákvörðun hafi því verið tekin um að leggja niður 4. bekkinn. En hvers vegna þann árgang? Í póstinum segir að rökin séu tvíþætt: „Annars vegar er um að ræða skekkju í kynjahlutföllum. En samkvæmt þjónustusamningi þá ber okkur að standa með hugmyndafræðinni okkar sem segir að kynjahlutföll fari ekki yfir 40%-60%. Í þessum árgangi er því um verulega skekkju að ræða. Hins vegar er afar líklegt að það myndi valda meiri keðjuverkandi skaða fyrir skólasamfélagið okkar í heild ef það vantaði heilan árgang barna sem eru búin að starfa stutt með okkur eða eru að hefja skólagönguna sína í barnaskólanum (ef öðrum árgangi yrði synjað um skólavist).“ Komin of stutt á veg Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa fregnirnar lagst illa í foreldra með börn á skólanum. Þjónustan þar sé vel liðin og ákall sé eftir því að fleiri skólastigum sé bætt við. Hildur segir eðlilegt að breytingarnar leggist ekki vel í fólk. Er ekkert húsnæði á svæðinu sem kom til greina? „Nei, því miður, og við erum komin of stutt á veg með framtíðarlausn til þess að við getum séð fram á að þjónusta alla með besta móti næsta haust,“ segir Hildur. Þarfagreining hefur verið gerð og framtíðarplön skólans eru á umræðustigi, en það liggur fyrir að ekki verður hægt að reisa húsnæði á nokkrum mánuðum. Hildur tekur þó fram að skólastjórnendur eigi í góðu samtali við sveitarfélagið um hvernig ráðast megi í stækkun skólans. Teljið þið hugsanlegt að þið getið brug ðist við fyrir þarnæsta skólaár? „Það eru auðvitað vonir og væntingar um það, klárlega.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Minni væntingar, minni árangur » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kristian skoraði sigurmarkið Greindi 741 þúsund orð Davíðs í 1662 ræðum Leggja niður kennslu í einum árgangi Ísland - Svíþjóð, staðan er 11:13 „Það er skammt stórra högga á milli“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Chuck Norris látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Lúxussnekkja á Pollinum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Nýjast á mbl.is » Kristian skoraði sigurmarkið Greindi 741 þúsund orð Davíðs í 1662 ræðum Leggja niður kennslu í einum árgangi Ísland - Svíþjóð, staðan er 11:13 „Það er skammt stórra högga á milli“ Umræðan Nýtt verklag: Verðbólgusía Menntunarstigið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leggja niður kennslu í einum árgangi Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Byggingin hönnuð til að gefa eftir Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Mest lesið Í gær Í vikunni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Gestir kvarta undan ólykt Flugi aflýst og heiðin enn lokuð Fleiri lægðir og hálfgert óveður í vændum Þotan fór tvívegis norður í dag Vill gera glæpamönnum lífið leitt Bráðamatsdeildin risin í Fossvogi Lúxussnekkja á Pollinum „Kom mér á óvart hvað ég féll fyrir Reykjavík“ Sorpa lokar á Sævarhöfða Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Leiguverð þarf að hækka töluvert Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Ryksprenging í tómum tanki Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Leiguverð þarf að hækka töluvert Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum