Innlent | mbl | 13.3.2026 | 23:35 Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Verðlaunin sem áttu að hvetja nemendur til að leggja sig fram í námi hafa verið lögð af. mbl.is/Karítas Hólmfríður María Ragnhildardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Minni væntingar, minni árangur Feimni við að leggja fyrir heimanám » Fleiri tengdar fréttir Fulltrúar meirihlutans í skóla- og frístundaráði hafa ákveðið að leggja af nemendaverðlaun Reykjavíkurborgar. Þetta samþykktu þeir á fundi skóla- og frístundaráðs í vikunni en tillagan barst frá sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs. Markmið verðlaunanna var að hvetja grunnskólabörn til að leggja sig betur fram til að skara fram úr í námi, félagsstarfi eða skapandi starfi. Nú verða þau lögð af og er ástæðan meðal annars sögð sú að starfsemi valnefndar hafi lagst af, kostnaður við verðlaunin hlaupi á hundruðum þúsunda og tilnefningum til verðlaunanna hafi fækkað verulega. Þannig hafi á síðasta ári þurft að fella niður viðburð þar sem afhenda átti verðlaunin sökum dræmrar þátttöku. Fulltrúar minnihlutans segjast harma að ekki hafi tekist að finna leið til að breyta fyrirkomulagi verðlaunanna svo áfram væri hægt að veita þau. Nær hefði verið að hagræða á öðrum sviðum en á kostnað grunnskólabarna. Frétt af mbl.is Minni væntingar, minni árangur Hægt og rólega dregið úr metnaði Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar voru veitt í fyrsta sinn vorið 2003. Fyrirkomulagi þeirra er lýst með eftirfarandi hætti í greinargerð sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs: Í upphafi var tilhögun afhendingar verðlaunanna þannig háttað að fyrst voru veitt verðlaun innan skólans til nemanda og þau afhent við útskrift að vori. Þegar nemendaverðlaun höfðu verið ákveðin í skólanum voru upplýsingar um viðkomandi nemanda sendar valnefnd verðlaunanna á þar til gerðu eyðublaði fyrir lok maí. Fræðsluráð skipaði valnefnd til að velja úr þeim hópi sem hafði fengið verðlaun í sínum skóla. Þrír nemendur voru síðan valdir úr hópnum sem tilnefndur var til valnefndar og hlutu 3 nemendur af heildinni verðlaun frá ráðinu. Fræðsluráð afhenti nemendaverðlaunin og viðurkenningarnar við hátíðlega athöfn í byrjun júní. Verðlaun hafa ætíð verið í formi bókagjafar. Þessi framkvæmd hefur þó tekið breytingum síðustu ár og hefur ekki verið jafn metnaðarfull. Skólar hættu að tilnefna þrjá nemendur og í staðinn tilnefndu þeir aðeins einn. Nemendur sem fengu tilnefningu fengu eftir sem áður verðlaun við sérstaka sameiginlega athöfn, er þá ekki um að ræða við skólaslit. Önnur sérstök sameiginleg athöfn var svo haldin fyrir þá sem hlutu 1., 2. og 3. sætið af öllum þeim sem voru tilnefndir. Starfsemi valnefndar lagðist síðan af. Frétt af mbl.is Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Keyrðu bækurnar út í skólana Nú síðustu ár hefur enn frekar dregið úr umfangi verðlaunanna og æ færri skólar sent inn tilnefningar, að því er fram kemur í greinargerðinni. Síðasta vor var svo komið að aðeins níu tilnefningar bárust. Var ákveðið að fella niður viðburð þar sem afhenda átti verðlaunin sökum dræmrar þátttöku. Nemendurnir sem tilnefndir voru fengu bækur sem keyrðar voru út í skólana þar sem stjórnendur sáu um afhendinguna. Frétt af mbl.is „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Kostnaður hleypur á hundruðum þúsunda Að lokum nefnir sviðsstjórinn í greinargerðinni að kostnaðurinn við bókaverðlaunin geti hlaupið á 400-600 þúsund krónum. Er þá ótalinn sá kostnaður sem hlýst af afhendingarathöfninni og aðkomu starfsfólks við undirbúning. „Í ljósi ofangreinds er lagt til að nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs verði lögð af,“ segir þar. Frétt af mbl.is Feimni við að leggja fyrir heimanám Jákvæð hvatning lögð af Tillagan var samþykkt á mánudag með fjórum atkvæðum Helgu Þórðardóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins og formanns ráðsins, Tinnu Helgadóttur borgarfulltrúa Pírata, Stefáns Pálssonar, borgarfulltrúa Vinstri grænna, og Líf Magneudóttur borgarfulltrúa Vinstri grænna. Marta Guðjónsdóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, Friðjón Friðjónsson og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, sátu hjá við afgreiðsluna. Í bókun Friðjóns og Árelíu segir að þau lýsi skilningi á sjónarmiðunum sem liggja að baki tillögunni, aftur á móti þyki þeim miður að ekki hafi tekist að finna leið til að þróa eða breyta fyrirkomulagi nemendaverðlauna þannig að þeir sem standa að þeim treysti sér áfram til að veita þau. „Æskilegt hefði verið að kanna betur hvort hægt væri að aðlaga fyrirkomulagið þannig að halda mætti í þann jákvæða hvata sem slík verðlaun geta skapað. Mikilvægt er að skólasamfélagið leiti áfram leiða til að hvetja nemendur til góðra verka, námsárangurs og jákvæðrar þátttöku í skólastarfi,“ segir í bókuninni. Í bókun Mörtu segir að verðlaunin hafi verið jákvæð hvatning fyrir nemendur og því sé miður að þau séu lögð af, meðal annars með rökum um of mikinn kostnað. „Nær hefði verið að hagræða á öðrum sviðum en á kostnað grunnskólabarna í borginni.“ Frétt af mbl.is Kröfur til nemenda á undanhaldi Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Minni væntingar, minni árangur Feimni við að leggja fyrir heimanám » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Snúa aftur eftir 16 ár Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Bandarískur hershöfðingi stjórnar rannsókninni Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Lentu í vandræðum uppi á jökli Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Hjálmar H. Ragnarsson látinn Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Snúa aftur eftir 16 ár Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Á mörkum framleiðslu og þjónustu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Quang Le fær ekki að opna bankareikning Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Lentu í vandræðum uppi á jökli Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Mest lesið Í gær Í vikunni Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Andlát: Þórir Einarsson Hjálmar H. Ragnarsson látinn Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar