Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.5.2026 | 16:30 Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, segir framhaldsskólana ekki sjá mun á nemendum eftir því úr hvaða skólum þeir koma. mbl.is/Kristinn Magnússon Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Beint: Íslenskukennsla á tímamótum » Fleiri tengdar fréttir Úttektir hafa verið gerðar hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem hafa bent til einkunnaverðbólgu í grunnskólum landsins, segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri stofnunarinnar. Í samtali við mbl.is segir Þórdís framhaldsskólana þó hafa verið með einkunnaverðbólgu til athugunar og á síðasta ári hafi Menntaskólinn í Reykjavík t.d. lagt próf fyrir alla nemendur og skoðað sérstaklega til samanburðar hvaða einkunnir þeir komu með inn í skólann. „Þau gátu ekki séð neinn mun á nemendum, hvort sem þeir kæmu úr Hagaskóla, Réttarholtsskóla eða öðrum,“ segir Þórdís. „En það er svona okkar tilfinning að framhaldsskólum líði vel með það sem þeir fá til þess að velja nemendur inn. Hátt í 90% nemenda eru að komast inn í þá skóla sem þeir setja í fyrsta og annað val þannig að langstærstur hluti nemenda er að komast í þann framhaldsskóla sem hugurinn stefnir til.“ Frétt af mbl.is „Öruggt að þau eru metin á mismunandi vegu“ Frétt af mbl.is Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Niðurstöður væntanlegar í maí Niðurstöður um 56 þúsund prófa eru væntanlegar í mánuðinum en stöðu- og framvindupróf voru lögð fyrir í fyrsta sinn í mars samkvæmt nýjum matsferli í sjö efstu árgöngum sumra grunnskóla, en skyldubundið í öllum grunnskólum í 4., 6. og 9. bekk. Þórdís segir að niðurstöðurnar muni skila vísi á stöðu nemenda í bæði lesskilningi og stærðfræði. Skólastjórnendur og kennarar muni geta séð niðurstöður nemenda í samanburði við landsmeðaltal og þannig sé viðmið á landsvísu komið inn í kerfið. „Prófin eru ekki gerð til þess að prófa öll hæfniviðmið heldur til þess að kanna færni og framvindu nemenda árlega þannig að þau styðji við þessar tvær undirstöður í námi nemenda.“ Þannig segir Þórdís að vonir standi til þess að viðmið sem niðurstöður stöðu- og framvinduprófa veita geti stuðlað að því að einkunnaverðbólga a.m.k. dragist saman. „Það væri held ég t.d. mjög skrítið að nemandi sem skoraði frekar lágt væri að fá gríðarlega háa einkunn frá kennara í t.d. stærðfræði. Þetta setur inn einhverja jafnvægisvog, ef við getum sagt sem svo.“ „Ef fólk upplifir á einhvern hátt ósanngirni með réttu eða röngu þá gætu niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum verið vísir um stöðu í lesskilningi og stærðfræði, til viðbótar við námsmat skólanna.“ Frétt af mbl.is Einkunnaverðbólga meiri á höfuðborgarsvæðinu Framvindan skoðuð árlega Þórdís segir að stöðu- og framvinduprófin muni veita mikilvægar upplýsingar en það sem mestu máli skipti sé að á næsta ári verði þau aftur lögð fyrir í sömu árgöngum og þá sé hægt að skoða hver framvindan sé. Það verði hægt að gera framvegis ár hvert. „Þetta er mikið magn af upplýsingum þar sem prófin eru brotin niður til þess að skilja stöðuna, bæði fyrir kennara sem geta þá brugðist við með breyttum áherslum í kennslunni, og fyrir foreldra.“ Samkvæmt reglugerð er gefinn eins árs aðlögunartími til að birta upplýsingar greinanlegar niður á skóla, sveitarfélög, aldur og annað í fyrsta sinn en Þórdís segir það mikilvægt til þess að upplýsingarnar verði birtar í samhengi. Frétt af mbl.is Ósamræmi muni bitna á nemendum Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Beint: Íslenskukennsla á tímamótum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Frumraun Nínu á miklu flugi Víkingur R. - Þór kl. 17.30, bein lýsing Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Meira fjármagn myndi flýta Miklubrautargöngum Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Frumraun Nínu á miklu flugi Víkingur R. - Þór kl. 17.30, bein lýsing Segjast engan mun sjá þrátt fyrir einkunnaverðbólgu Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forvitnaðist um greiðslu styrkja Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Hantaveirusmit aldrei rannsökuð hérlendis Mest lesið Í gær Í vikunni Nemendum með A stórfjölgar milli ára Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Sofnaði undir stýri á stórum gatnamótum Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Beittu sér gegn umdeildri mynd um Grænland Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka

Share this article