Freyr Friðfinnsson hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem viðskiptastjóri fyrir tækni- og hugverkaiðnað. Hann hóf störf um miðjan mars en þar á undan starfaði Freyr hjá Klak – Icelandic Startups síðan 2019. Hjá Klak hafði hann umsjón með alþjóðlegum verkefnum og leiddi meðal annars uppbyggingu og framkvæmd verkefnisins Dafna fyrir Tækniþróunarsjóð. Hann stýrði einnig hröðlum og hugmyndasamkeppnum og tók þátt í að byggja upp stærsta mentorsamfélag landsins, Klak VMS. Freyr er fæddur og uppalinn á Húsavík en árið 2007 flutti hann suður í 10. bekk. Eftir það ákvað hann að fara á náttúrufræðibraut við Menntaskólann í Kópavogi og kláraði menntaskólanámið á þremur og hálfu ári. „Þar sem ég kláraði námið aðeins fyrr hafði ég smá tíma til að ferðast áður en ég fór í háskóla og ákvað að fara til Kosta Ríka þar sem ég var í spænskuskóla og sjálfboðaliðastarfi í þrjá mánuði. Ég bjó þá hjá fjölskyldu sem kunni enga ensku þannig að maður þurfti bara að læra málið.“ Nánar er fjallað um Frey í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .