Innlent | mbl | 6.4.2026 | 10:16 Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina Búast má við snjókomu og skafrenningi með versnandi færð á höfuðborgarsvæðinu í dag en rigningu eða slyddu undir kvöld. Mynd úr safni. mbl.is/Eyþór Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Herjólfur siglir eina ferð í dag Fylgstu með lægðinni ganga yfir Skíðasvæðin mörg opin Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Næsta lægð á miðvikudag » Fleiri tengdar fréttir Veður virðist vera að ganga eftir en gular veðurviðvaranir tóku gildi klukkan átta í morgun á Suður- og Suðausturlandi. Tekið er að hvessa við suðurströndina og vindur kominn upp í stormstyrk ansi víða að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en stormur er skilgreindur í 20,8-24,4 metrum á sekúndu. Kviður hafa þá mælst yfir 30 metra á nokkrum stöðum og úrkoma er að nálgast Vestmannaeyjar. Hún kemur svo fljótlega inn á land í kjölfarið. Líklegt er að einhver snjókoma verði á Suðurlandi um skeið og síðan fylgi slydda og svo rigning. Til hádegis má búast við austan 15-23 metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum, snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð. Ferðaveður verður varasamt. Frétt af mbl.is Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Appelsínugult ástand Frá hádegi og fram yfir kvöldmat fer ástandið úr gulu yfir í appelsínugult á Suðurlandi með vaxandi vindhraða og staðbundnum vindhviðum yfir 40 metrum á sekúndu. Þá má búast við snjókomu eða slyddu og skafrenningi með slæmu skyggni og versnandi færð en víða rigningu undir kvöld. Ekkert ferðaveður verður á þessum tíma. Einnig eru líkur á foktjóni og fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Appelsínugul viðvörun verður í gildi til klukkan 23 á Suðausturlandi en ástand verður aftur gult klukkan 20 á Suðurlandi og fram undir miðnætti þegar viðvaranir falla úr gildi. Frétt af mbl.is Fjórum ferðum þegar aflýst Ekkert ferðaveður Veðrið færist yfir Faxaflóa núna klukkan 10 en appelsínugul viðvörun tekur gildi á svæðinu klukkan 14 og stendur til klukkan 22. Gul viðvörun verður í gildi frá klukkan 22 og fram yfir miðnætti. Veðurspáin er álíka þeirri á sunnan- og suðaustanverðu landinu. Ferðaveður verður varasamt með austan 15-23 metrum á sekúndu með snörpum vindhviðum, snjókomu eða skafrenningi, með slæmu skyggni og versnandi færð. Þegar appelsínugul viðvörun tekur gildi klukkan 14 og til 22 verður ekkert ferðaveður. Eiríkur Örn Jóhannsson, veðurfræðingur á veðurstofunni, segir í samtali við mbl.is að sjálfsagt muni snjóa aðeins meira á Faxaflóanum og aðeins lengur. Síðan fari veðrið norðaustur yfir landið. „Það verður stormur á öllu landinu í dag á einhverjum tímapunkti og snjókoma alveg á norðurhelmingi landsins og á Austurlandi líka. Það hlýnar ekki þar fyrr en skilin eru farin yfir.“ Frétt af mbl.is Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stormur fram eftir kvöldi Á höfuðborgarsvæðinu segir Eiríkur að búast megi við stormi en gul viðvörun tekur gildi klukkan 13 í dag og gildir til klukkan 23 í kvöld með austan 15-25 metrum á sekúndu og vindhviðum allvíða yfir 30 metrum á sekúndu, hvassast á Kjalarnesi. Þá má búast við snjókomu og skafrenningi með versnandi færð en rigningu eða slyddu undir kvöld. Mestu vandræðin sem má búast við á höfuðborgarsvæðinu að mati Eiríks tengjast því að það mun snjóa svolítið fram á daginn. Þá gæti orðið svolítið blint og einhver skafrenningur. Þegar líður á daginn mun að líkindum hlýna og snjórinn verða blautari. Þá má búast við slyddu og rigningu undir kvöld. Fólki er eindregið ráðið frá því að ferðast á milli landshluta. Eiríkur segir að einnig gætu skapast einhver vandræði með færð innan höfuðborgarsvæðisins, einkum í íbúðargötum. „Þar er náttúrulega seinast mokað og ef það er skafrenningur þá myndast skaflar. Veðri vill líka vera misskipt milli borgarhluta. Veðurhæðin er mismikil eftir því hvar í borginni maður er. Fólk þarf í dag, eins og í öðrum gulum viðvörunum, að sýna aðgát og meta stöðuna fyrir hvern og einn.“ Á höfuðborgarsvæðinu á að draga jafnt og þétt úr veðurhæðinni eftir kvöldmat en þó má búast við stormi fram eftir kvöldi. Veðurvefur mbl.is Tengdar fréttir Veður Herjólfur siglir eina ferð í dag Fylgstu með lægðinni ganga yfir Skíðasvæðin mörg opin Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Næsta lægð á miðvikudag » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Icelandair aflýsir fleiri ferðum Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina LeBron réð ekki við ungstirnið Yfirmaður leyniþjónustunnar drepinn Skíðasvæðin mörg opin Umræðan Enn ein hótun Trumps Menn láta nýtt vín á nýja belgi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg Láta alzheimer ekki stoppa sig Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Mest lesið Í gær Í vikunni Næsta lægð á miðvikudag Fylgstu með lægðinni ganga yfir Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Bíll valt á Hellisheiði Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fjórum ferðum þegar aflýst Það magnaðasta sem hægt er að sjá Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Nýi garðskálinn glæsilegur Láta alzheimer ekki stoppa sig Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Nýjast á mbl.is » Icelandair aflýsir fleiri ferðum Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina LeBron réð ekki við ungstirnið Yfirmaður leyniþjónustunnar drepinn Skíðasvæðin mörg opin Umræðan Enn ein hótun Trumps Menn láta nýtt vín á nýja belgi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sífellt fleiri Íslendingar velja sykurskertar hátíðarblöndur Það magnaðasta sem hægt er að sjá Gefist unga fólkið upp þá er engin framtíð Fjórum ferðum þegar aflýst Mest lesið Í gær Í vikunni Næsta lægð á miðvikudag Fylgstu með lægðinni ganga yfir Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Bíll valt á Hellisheiði Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fjórum ferðum þegar aflýst Það magnaðasta sem hægt er að sjá Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Nýi garðskálinn glæsilegur Láta alzheimer ekki stoppa sig Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu