Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stormur og norðanhríð

Read Full Article →

Hríðarveður og stormur geisa á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra og getur vindur farið í yfir 35 metra á sekúndu í hviðum undir fjöllum. Samgöngur hafa raskast á nokkrum stöðum á landinu vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Heldur ætti að sljákka í veðrinu fyrir tíu á Ströndum og Norðurlandi vestra og fyrir klukkan fimm síðdegis á Vestfjörðum. Stormur geisar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar sleppur fólk við úrkomuna en vindurinn er slíkur að hviður geta verið hættulegar farartækjum sem taka á sig mikinn vind. Snjókoma eða skafrenningur er á norðanverðu landinu og dálítil rigning eða slydda suðaustantil. Annars er bjart með köflum. Norðan og norðaustan tíu til átján metrar á sekúndu, en átján til 25 norðvestanlands fram yfir hádegi. Snjókoma eða skafrenningur á norðanverðu landinu, dálítil rigning eða slydda suðaustantil, en annars bjart með köflum. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum. Norðvestlæg átt, átta til fimmtán metrar á sekúndu, og skýjað með köflum á morgun, hvassast við austurströndina, en stöku él norðaustananlands. Hægt vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestantil seinnipartinn, 13-20 og snjókoma eða slydda þar seint um kvöldið og hlýnar í veðri.

Share this article