Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stormur á stærstum hluta landsins

Read Full Article →

Stormur skellur á Breiðafirði og Vestfjörðum seint í kvöld og færist síðan austur yfir landið og geisar á Norðurlandi, Austurlandi, Austfjörðum og miðhálendinu áður en yfir lýkur. Mest fer fyrir veðrinu á morgun þegar það geisar á öllu norðanverðu landinu og miðhálendinu. Íbúar við Breiðafjörð geta þó ekki varpað öndinni léttar fyrr en kemur fram á laugardag því þar fylgir annar stormur í kjölfarið nokkrum klukkustundum eftir að sá fyrri gengur niður. Í nótt og á morgun verður stormur með talsverðri rigningu eða slyddu og hláku. Ferðaveður verður varasamt bæði vegna vinds og vatnavaxta sem fylgja hlákunni og úrkomunni. Fólk er hvatt til að hreinsa frá niðurföllum. Um kvöldmatarleytið á morgun skellur seinni stormurinn á við Breiðafjörð og fylgir honum dimm él. Það veður gengur ekki niður fyrr en á laugardagsmorgunn.

Share this article