Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stormur, ófærð og erfið akstursskilyrði

Read Full Article →

Allhvöss eða hvöss norðaustanátt verður í dag og víða stormur norðvestantil og við suðausturströndina, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við norðaustan stórhríð á Vestfjörðum með tilheyrandi ófærð. Þá varar hann við erfiðum akstursskilyrðum og blindu í hríð á utanverðum Tröllaskaga, og á fjallvegum á Austfjörðum, svo sem í Fagradal og á Fjarðarheiði, eftir hádegi og fram á nótt. Snarpar vindhviður, um 35 metrar á sekúndu, í Öræfum í fyrstu og svo undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi eftir hádegi og fram á kvöld, og aftur snarpar vindhviður í Öræfum í kvöld. Á vef Vegagerðarinnar segir að bilun sé í símkerfi 1777 en hægt er að fylgjast með aðstæðum á vegum á umferdin.is . Unnið er að viðgerð.

Share this article