Veðrið verður öllu rólegra í dag en það hefur verið síðustu daga með minni vindi og snjókomu en þá sem setti mark sitt á norðan- og norðvestanvert landið. Þó eru enn í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum. Vestfirðingar þurfa líka að búa sig undir annan hvell í kvöld. Undir miðnætti skellur á stormur með snjókomu og skafrenningi. Þá má búast við að samgöngur fari aftur úr skorðum. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðvestlæg átt, 3-10 m/s, en 10-15 við austurströndina fram eftir degi. Skýjað með köflum, en stöku él norðaustanlands. Hægt vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestantil seinnipartinn, 13-20 og snjókoma eða rigning þar seint í kvöld. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum. Suðvestan 15-23 m/s og víða talsverð rigning á morgun, sums staðar slydda í fyrstu, en rofar til norðaustanlands. Hiti víða 5 til 10 stig yfir hádaginn. Kólnar í veðri seinnipartinn með éljum, fyrst vestantil og hiti nærri frostmarki um kvöldið.