Hríðarveður geisar á norðvestanverðu landinu í dag og gengur ekki niður að fullu fyrr en síðla nætur og í fyrramálið. Viðbúið er að akstursskilyrði versni, einkum á fjallvegum. Það blæs um landsmenn í dag vegna alldjúprar lægðar skammt norðaustur af landinu. Vestanlands hvessir og búast má við staðbundnu hvassviðri eða stormi og snjókomu eða skafrenningi seinnipartinn, einkum á Vestfjörðum og sunnanverðu Snæfellsnesi. Viðbúið er að slíkt veður geisi einnig suðvestanlands í kvöld og í nótt, samkvæmt pistli veðurfræðings. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu en vestlægari austanlands. Snjókoma um norðanvert landið, en þurrt að kalla syðra. Bætir í vind vestanlands eftir hádegi, tíu til átján í kvöld, en sums staðar staðbundinn stormur við fjöll og víða snjókoma eða skafrenningur. Hiti nálægt frostmarki að deginum. Norðvestan átta til fimmtán á morgun, hvassast suðaustantil. Él eða slydduél, en þurrt að kalla suðaustanlands. Hiti 0 til 5 stig.