Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvessir norðantil

Read Full Article →

Allhvasst verður víða á norðanverðu landinu í dag en útlit er fyrir hægari vind syðra. Hitinn gæti farið í þrettán til fjórtán stig á Norðaustur- og Austurlandi þegar best lætur en svalara verður annars staðar. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðvestan átta til átján metrar á sekúndu, hvassast norðantil. Skúrir eða slydduél, en léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti þrjú til þrettán stig, mildast eystra. Suðvestan fimm til þrettán á morgun. Skúrir eða slydduél, en þurrt að mestu og bjart með köflum austanlands. Heldur svalara. Næstu daga má búast við að svalt verði í veðri.

Share this article