Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hríð fram á nótt

Read Full Article →

Viðbúið er að færð spillist og vegum verði lokað á norðvestanverðu landinu í dag, frá Snæfellsnesi að Norðurlandi vestra vegna hríðarveðurs. Slíkum vindham er spáð á Suðausturlandi að þar má búast við samgöngutruflunum, sandfoki og því að nokkrum vegum verði lokað. Þar er útlit fyrir ofsaveður annað kvöld. Varasamar eða hættulegar aðstæður geta skapast á miðhálendinu vegna storms eða roks. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðaustan fimmtán til 25 metrar á sekúndu vestantil um hádegi, hvassast á Vestfjörðum, en lægir í nótt. Annars breytileg átt 3-10. Snjókoma eða él, og bætir í ofankomu um landið norðanvert í kvöld, en úrkomuminna sunnan jökla. Hiti um og yfir frostmarki, en yfirleitt vægt frost vestantil. Hvessir austanlands síðdegis, norðan og norðvestan átján til 28 seint í kvöld, hvassast suðaustantil, en 23 til 30 þar í nótt. Lægir á morgun, en gengur í suðaustan átján til 28 annað kvöld, hvassast vestantil, en hægari norðaustantil fram á kvöld. Kólnandi veður.

Share this article