Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stefnir í vonskuveður á morgun

Read Full Article →

Flestir landsmenn eiga eftir að upplifa lognið á undan storminum í dag því á morgun gengur hríðarveður og stormur yfir allt landið og verður stórhríð suðvestantil og á miðhálendinu. Veðrið verður víðast hvar rólegra í dag en þó er hvöss norðvestanátt ríkjandi austantil en annars verður mun hægari vindur. Dálítil él norðanlands og síðdegis við vesturströndina. Frost fer í allt að tíu stig. Enn er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðvestan tíu til átján metrar austantil í dag, annars mun hægari vindur. Bjart með köflum, en dálítil él norðanlands og einnig við vesturströndina síðdegis. Frost víða tvö til tíu stig. Dregur úr vindi á norðaustanverðu landinu í kvöld, léttir til og herðir á frosti. Vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, átján til 28 metrar á sekúndu í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestantil, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis.

Share this article