Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega hefur þó gengið að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í Færeyjum í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem átti að fara undir hádegið en mikil seinkun er þegar orðin á því flugi og enn óvíst hvort það fari yfir höfuð af stað í dag. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti undanriðilsins, þar sem Færeyjar eru með 4 stig, eins og Portúgal, en Ísland 2. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni.RÚV / Mummi Lú