Uppfært kl. 13:08 þegar ljóst var að íslenska liðið gæti ferðast. Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega gekki þó að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði þá að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem fór af stað upp úr hádegi eftir talsverða seinkun. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti riðilsins, þar sem Færeyjar og Portúgal eru með 4 stig en Ísland 2. Svartfjallaland er efst með 6 stig. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni.RÚV / Mummi Lú