Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samstarf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður framlengt til fimm ára

Read Full Article →

Ríkisútvarpið og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður undirrituðu samstarfssamning til næstu 5 ára á Ísafirði um páskana. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fór fyrst fram árið 2004 og hefur RÚV fylgt henni eftir frá upphafi. Í fyrstu var hátíðinni útvarpað á Rás 2, en í dag er tónlistarveislunni bæði útvarpað og sjónvarpað í heild sinni og voru bæði kvöld hátíðarinnar í beinni útsendingu. Útsendingarnar hafa notið vinsælda og eru orðnar fastur liður í páskahátíðarhöldunum hjá mörgum landsmönnum sem fylgjast með gleðinni á Ísafirði ár hvert. Hátíðin í ár tókst vel. Tugir listamanna kom fram og skemmtu bæði heimafólki og gestum, auk þeirra sem fylgdust með útsendingunni um land allt. Einmuna blíða var á Ísafirði og góð stemning bæði innan- og utandyra. „Aldrei fór ég suður er ein mikilvægasta tónlistarhátíð landsins og útsendingar frá henni eru einn af hápunktum ársins í tónlistarumfjöllun RÚV. Rás 2 vill með nýjum samningi treysta samstarfið og styðja við þetta stórkostlega framtak Ísfirðinga,“ segir Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóri Rásar 2. Sigurður Þorri Gunnarsson dagskrárgerðarmaður RÚV hélt utan um útsendingar helgarinnar og hann og Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri handsöluðu samninginn í blíðunni á laugardag þegar hátíðin stóð sem hæst. „Við höfum lagt upp með frá upphafi að reyna að deila gleðinni til þeirra sem ekki komast á hátíðina og hafa Rás 2 og RÚV staðið við bakið á okkur þar nærri því öll árin. Hátíðinni hefur verið gert skil í útvarpi og sjónvarpi síðustu árin með heilmiklum myndarbrag og allt er þetta til í úrvalsgæðum. Þetta er ekki bara frábær þjónusta fyrir unnendur góðs útvarps og sjónvarps heldur er þetta mikilvæg söguskráning á íslenskri tónleikamenningu,“ segir Kristján Freyr rokkstjóri Aldrei fór ég suður.

Share this article