Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður á Ísafirði hefst í dag með pompi og prakt. Dagskráin hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður sýnt frá tónleikunum í beinni útsendingu á RÚV 2. Í kvöld stíga á stokk: Fallinn Gjóður, sem sigraði Músíktilraunir á dögunum Páll Óskar & Benni Hemm Hemm Amabadama Friðrik Dór Kusk og Óviti Spacestation Sykur Hátíðin heldur svo áfram annað kvöld en þá koma fram: CHÖGMA Skúli mennski Kælan mikla Úlfur Úlfur Alaska1867 & Joey Christ Skítamórall Leiðtogafundur í Höfða Í síðustu viku gengust tónlistarhátíðirnar Bræðslan á Borgarfirði eystra og Aldrei fór ég suður á Ísafirði í eins konar fóstbræðralag og hafa gert með sér svokallað „vinahátíðasamkomulag“. Leiðtogar hátíðanna, Kristján Freyr rokkstjóri Aldrei fór ég suður og Magni Ásgeirsson Bræðslustjóri handsöluðu samninginn í Reykjavík þar sem þeir voru staddir í borginni á sama tíma. Þeir Magni og Kristján höfðu haft vitneskju um að fulltrúar austurs og vesturs hefðu fyrir margt löngu hist við Höfða og þótti það fullkominn staður til handsalsins. Í samkomulaginu felst að hátíðirnar munu hjálpast að við að gera íslenskri tónlist sem hæst undir höfði, auka veg tónleikamenningar hér á landi og auka fagmennsku í skipulagi sínu. Hátíðirnar munu leitast við að jákvæð áhrif þeirra á nærumhverfi sitt verði sem mest og leggja áherslu á að gestir skemmti sér fallega í sátt og samlyndi við íbúa annars vegar á Borgarfirði eystra og hins vegar á Ísafirði. „Vinasamkomulagið mun vafalaust auka samstarfið á milli tónlistarfólks beggja landshluta og skila sér í því að austfirskt tónlistarfólk heimsæki Aldrei fór ég suður vestra og vestfirskt tónlistarfólk komi að sama skapi fram á Bræðslunni eystra. Einnig sjáum við fyrir okkur að ef fólk vill sækja báðar hátíðir þá fær það pakkatilboð, greiðir eingöngu fyrir aðra hátíðina,“ segir Magni Ásgeirsson. Þeir Kristján og Magni, ásamt öllum þeim sem koma að hátíðunum tveimur, eru glaðir með hið nýja samkomulag sem festir annars gott vinasamband í gegnum tíðina. „Við þurfum meiri vináttu og kærleika á þessum víðsjárverðu tímum og þetta gleður okkur mjög. Kannski verður þetta vísir að frekara vinasambandi milli sveitarfélaganna og talandi um vísa; í báðum bæjarstæðum verða reistir vegvísar, einn við Bræðslu sem vísar á Ísafjörð og annar við Aldrei-skemmuna sem vísar á Borgarfjörð eystra til að ramma þetta inn,“ segir Kristján Freyr. Aldrei fór ég suður fer fram núna um páskana 3.–4. apríl á Ísafirði en Bræðslan verður haldin 25. júlí á Borgarfirði eystra.