Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aldrei á Bræðsluna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.3.2026 | 21:34 Aldrei á Bræðsluna Magni og Kristján Freyr á sínum eigin leiðtogafundi við Höfða 2026. Þar var annar slíkur haldinn 1986. Ljósmynd/Facebook-síða Bræðslunnar Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Hinar kunnu tónlistarhátíðir Bræðslan á Borgarfirði eystra og Aldrei fór ég suður á Ísafirði hafa nú gengið í fóstbræðralag. Frá þessu greinir á Facebook-síðu Bræðslunnar sem þó lætur þess ógetið hvort menn hafi vakið sér blóðs eða rist sér jarðarmen svo sem siður var á vettvangi fornsagna við slíkar athafnir. Hvað sem því líður komu þeir Magni Ásgeirsson Bræðslustjóri og Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, saman á leiðtogafundi hátíðanna við Höfða, risnuhús Reykjavíkurborgar, þar sem annar leiðtogafundur var haldinn fyrir tæpum 40 árum, í október 1986, og bundust fastmælum um náið samstarf hátíðanna. „Lengi hefur gott vinasamband ríkt milli þessara hátíða,“ segir Magni við mbl.is, spurður út í fóstbræðralagið, „stjórnendur hátíðanna hafa leitað ráða hvorir hjá öðrum og við ákváðum að ganga aðeins lengra og nú hafa vegvísar verið settir upp á stöðunum þar sem hvor staðurinn bendir á hinn, okkur langaði að gera gott samband betra og hjálpast að við að gera veg íslenskrar tónlistar meiri,“ heldur hann áfram. Á Aldrei og öfugt Þó er um langan veg að fara. „Já, en stutt í huganum,“ svarar Magni að bragði og lætur ekki slá sig úr söðli. Í framkvæmd felist þetta meðal annars í því að eitt austfirskt atriði verði ef til vill á sviði Aldrei fór ég suður og eitt vestfirskt að sama skapi á Bræðslunni. „Alls konar þannig hugmyndir eru í gangi enda hafa líklega allir starfsmenn Bræðslunnar farið á Aldrei og öfugt,“ segir Magni. Á Facebook skrifar Bræðslan: Í samkomulaginu felst að hátíðirnar munu hjálpast að við að gera íslenskri tónlist sem hæst undir höfði, auka veg tónleikamenningar hér á landi og auka fagmennsku í skipulagi sínu. Hátíðirnar munu leitast við að jákvæð áhrif þeirra á nærumhverfi sitt verði sem mestar og leggja áherslu á að gestir skemmti sér fallega í sátt og samlyndi við íbúa annars vegar á Borgarfirði eystra og hins vegar á Ísafirði. Þarna er svo sem ekki gefið til kynna að hugmyndin sé að ljúka kalda stríðinu eins og á leiðtogafundinum forðum enda því löngu lokið. En göfugt er markmiðið engu að síður. Leiðtogar koma saman. Greina má falsaða valbrá á höfði Magna í anda Sovétleiðtogans fallna. Ljósmynd/Facebook-síða Bræðslunnar Tveir fyrir einn reyndist brandari Athygli vekur tilboð sem sett er fram á Facebook, „Ef gestir vilja sækja báðar hátíðir þá fá allir pakkatilboð, greitt verði eingöngu fyrir aðra hátíðina,“ og haft eftir Magna. Þarna er þó augljós brandari á ferð enda frítt á Aldrei fór ég suður. Magni staðfestir gamansemina. „Hann laug því að ég hefði sagt þetta og þetta var bara grín en helvíti gott hjá honum,“ segir Magni og á við Kristján Frey. „Okkur fannst bara skemmtilegt að búa til smá samheldni á þessum hörmulega leiðinlegu tímum,“ segir Magni og bætir því aðspurður við að undirbúningur Bræðslunnar í júlílok gangi vel. „Við erum langt komnir og bíðum eiginlega bara eftir að vinir okkar á Aldrei klári sitt áður en við tilkynnum hvað við ætlum að gera. Við bíðum eiginlega bara eftir að páskarnir klárist [vettvangur Aldrei fór ég suður] og þá hendum við út okkar dagskrá. Ég bið bara fyrir bestu kveðjur vestur,“ segir Magni Ásgeirsson að lokum, búsettur á Akureyri þar sem hann rekur tónlistarskóla. „Við notum Bræðsluna sem afsökun til að vera á Borgarfirði,“ segir Magni Ásgeirsson að lokum um nýtt vinasamband og fóstbræðralag Aldrei fór ég suður og Bræðslunnar, tveggja tónlistarhátíða sem fyrir löngu hafa sett mark sitt á íslenskt vor og sumar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Glódís og félagar unnu á Old Trafford Fylgstu með óveðrinu nálgast Verður alveg eins og á Alla Gísla-tímanum Aldrei á Bræðsluna Valur vann eftir framlengda spennu Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Áfram í haldi eftir árásina á Höfðatorgi Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Óvíst um afdrif umsóknar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Glódís og félagar unnu á Old Trafford Fylgstu með óveðrinu nálgast Verður alveg eins og á Alla Gísla-tímanum Aldrei á Bræðsluna Valur vann eftir framlengda spennu Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) ESB og Ísland undirrita samstarf í öryggis- og varnarmálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Talsverð röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar Loka endurvinnslustöðvum Sorpu vegna veðurs Ætla sér að tryggja yfirráð Íslands Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Óvíst um afdrif umsóknar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl

Share this article