Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aldrei-hausar of margir til að heilsa öllum

Read Full Article →

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði um páskahelgina, í 22. sinn. Þar koma fram fjölmargar hljómsveitir og væntanlega í mörg horn að líta fyrir skipuleggjendur. Gréta Sigríður Einardóttir fréttamaður ræddi við Kristján Frey Halldórsson rokkstjóra í hádegisfréttum. Hann sagði undirbúninginn ganga vel. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis, en framtakið er meðal annars fjármagnað með sölu varnings. Aldrei-húfurnar hafa notið sífellt meiri vinsælda síðustu árin, að sögn Kristjáns. „Fyrstu árin, ef maður sá Aldrei-fór ég-suður-haus í Reykjavík, heilsaði maður viðkomandi yfirleitt, en ekki lengur. Nú er svo mikið um þetta.“ Kristján segist kunna vel að meta að fólk styðji við hátíðina með þessum hætti.

Share this article