Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Undirbúningurinn gengið „óþægilega vel“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.4.2026 | 18:15 Undirbúningurinn gengið „óþægilega vel“ Frá hátíðinni árið 2024. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Hátíðin Aldrei fór ég suður á Ísafirði hefst í kvöld þegar sjö tónlistaratriði koma fram í hinni svokölluðu Kampaskemmu. Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri hátíðarinnar segir undirbúning hátíðarinnar hafa gengið óþægilega vel. Hátíðin fer nú fram í 22. skiptið en hún var fyrst haldin páskana 2004. Frétt af mbl.is Aldrei á Bræðsluna Landslið í krísustjórnun Fyrra kvöld hátíðarinnar er í kvöld og lýkur hátíðinni svo á morgun þegar sex tónlistarmenn til viðbótar stíga á stokk. „Undirbúningur hátíðarinnar hefur gengið óþægilega vel. Við erum með kvíða yfir því að við séum hreinlega að gleyma einhverju,“ segir rokkstjórinn í samtali við mbl.is. Tugir sjálfboðaliða koma að undirbúningi og skipulagningu hátíðarinnar. „Við erum svo lukkuleg með það að þetta er mjög öflugur hópur. Ef við værum að stofna til landsliðshóps í krísustjórnun eða viðburðahaldi þá ætla ég að leggja til að haft verði samband við Aldrei fór ég suður-hópinn,“ segir Kristján. Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri. mbl.is/Golli Diskókúluþema þetta árið Kristján segir hátíðina þetta árið vera með svipuðu sniði og síðastliðin ár. „Í grunninn er þetta bara tónlistarhátíð með þrettán atriðum. Það er landsliðið á hverjum stað hjá okkur, í hljóði, ljósum, sviðsstjórn, gæslu og öllu. Í grunninn er þetta alltaf það sama en við reynum alltaf að ögra okkur aðeins með smá nýjungum. Hermigervill leikur listir sínar á Aldrei fór ég suður 2019. Ljósmynd/Ásgeir Helgi Þegar kemur að veitingum, varningi og öðrum hliðarverkefnum í kringum hátíðina reynum við alltaf að bjóða upp á einhverjar nýjungar. Páll Óskar kom hérna með diskókúlu og gaf okkur. Þetta er óhagnaðardrifin hátíð og þetta er allt unnið á sjálfboðaliðum. Við ætlum að selja þessa diskókúlu sem Páll Óskar gaf okkur til fjáröflunar hátíðarinnar. Það er diskókúluþema í öllum peysunum hjá okkur, það er gleðilegt og hálfgerð nýjung.“ Todmobile í hörkustuði á hátíðinni 2019. Ljósmynd/Ásgeir Helgi Engan bilbug á þeim að finna Ísfirðingar eru nokkuð heppnir með veður þessa páskahelgina. „Þetta er alveg príma. Það er verst að maður þarf að píra augun svo mikið. Það er alveg glampandi sól, blár himinn og allt hvítt og fallegt. Tónlistarfólkið er allt gapandi yfir fegurðinni hérna,“ segir Kristján. Eins og áður segir hefur hátíðin farið fram nær ár hvert frá árinu 2004 og hljóta menn því að velta því fyrir sér hvort þessi skemmtilega hátíð sé að nálgast endalok sín. „Fyrir tveimur árum síðan settumst við niður, settum alla okkar hluti á borðið og veltum fyrir okkur hvort þetta væri ógjörningur. Þetta snýst um að geta tryggt öryggi gesta og guð forði okkur frá því að eitthvað gerist en við gerum okkar besta í því að taka á móti fólki. Ísafjarðarbær, fyrirtæki og stofnanir hér á svæðinu gera okkur kleift að fara út í þetta. Þetta eru orðin 22 ár en það er engan bilbug á okkur að finna sem stöndum að þessu,“ segir rokkstjórinn að lokum. Herra Hnetusmjör á Aldrei fór ég suður 2019. Ljósmynd/Ásgeir Þrastarson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Njarðvík, staðan er 14:29 Ég elska Liverpool Undirbúningurinn gengið „óþægilega vel“ Fiskikóngurinn keypti heilt þorp og Garðar eignast sjöunda barnið Haukar stungu af í seinni í Garðabæ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Markmiðinu náð og Borghildur kemst í sjúkraflug Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“ Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Njarðvík, staðan er 14:29 Ég elska Liverpool Undirbúningurinn gengið „óþægilega vel“ Fiskikóngurinn keypti heilt þorp og Garðar eignast sjöunda barnið Haukar stungu af í seinni í Garðabæ Umræðan ESB-vegferðin hefst – tíu atkvæði keypt Er til annað líf? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Biðlistinn bara lengist og lengist Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Segir forseta Írans vilja vopnahlé Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Markmiðinu náð og Borghildur kemst í sjúkraflug Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Maðurinn sem lenti í bílslysi í Suður-Afríku er látinn Laufey Lín selur miða fyrir milljarða Spakur en urraði þegar að var komið Gerandinn kom í gegn á miðilsfundi Margir féllu fyrir aprílgabbi: Enginn afsláttur hjá Skattinum Tvö umferðaróhöpp á síðasta klukkutímanum Gul viðvörun fyrir nær allt landið Hvassahraun auglýst til sölu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun „Skynja rosalega mikla reiði“

Share this article