Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Undirbúningur að alþingishátíð hafinn

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.4.2026 | 21:55 Undirbúningur að alþingishátíð hafinn Tildraði fólk sér upp um alla kletta, sagði Morgunblaðið. Ljósmynd/Eyjólfur Jónsson Guðm. Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Forsætisnefnd Alþingis hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að skipuð verði fimm manna framkvæmdanefnd til að undirbúa hátíðahöld í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030. Gert er ráð fyrir því í tillögunni að nefndin taki til starfa í haust en vinnan fari að mestu leyti fram árin 2029 og 2030. Ráðinn verði framkvæmdastjóri í samráði við framkvæmdanefndina sem hefji störf árið 2029, eða fyrr sé tilefni til og fjárveitingar leyfi, og gera verði ráð fyrir að starfi fram á fyrstu mánuði ársins 2031, þ.e. tæplega tvö ár. Raunar hófst undirbúningurinn á síðasta ári þegar Alþingi boðaði til opinnar hugmyndasöfnunar um tillögur til að setja á dagskrá afmælisársins og bárust 77 tillögur. Kostnaður við greiðslu þóknunar framkvæmdanefndar, ráðningu framkvæmdastjóra og laun hans er áætlaður 52 milljónir króna. Auk þess er gert ráð fyrir að afmörkuð verði sérstök fjárveiting, samtals 750 milljónir króna, fyrir útgjöldum í tengslum við viðburði og verkefni í tilefni af afmælishátíðinni. Í greinargerð með tillögunni segir að árið 2030 sé ekki eingöngu tímamót í sögu Alþingis heldur verði einnig liðin 50 ár frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands og 100 ár frá fæðingu hennar. Ef til vill verði mögulegt að flétta þau tímamót inn í hátíðahöld í tilefni af 1100 ára afmælis Alþingis. Fjölbreytt dagskrá var á þriggja daga alþingishátíð á Þingvöllum árið 1930. Á myndinni sjást hátíðargestir fylgjast með kappreiðum. Ljósmynd/Ólafur Magnússon Íslenskt þjóðríki verður til Í greinargerðinni segir að íslenskt þjóðríki hafi orðið til þegar Alþingi var stofnað árið 930 á Þingvöllum við Öxará. Upp frá þeirri stundu hafi Íslendingar átt allsherjarþing sem setti lög sem giltu um alla landsmenn og skuldbatt þá þannig hvern öðrum. Alþingi kom saman á Þingvöllum fram til ársins 1798. Rifjað er upp að dagana 26.-28. júní árið 1930 hafi verið haldin fjölmenn hátíð á Þingvöllum til að minnast þess að liðin voru 1.000 ár frá stofnun Alþingis. Eiginlegur undirbúningur afmælisfagnaðarins hófst árið 1926 þegar kosin var nefnd til að leggja á ráðin um afmælishaldið og undirbúning þess, einkum hvað Þingvelli varðaði. Árið 1928 gerði Alþingi Þingvelli að friðlýstum helgistað allra Íslendinga frá og með ársbyrjun 1930 og alþingishátíðarnefndin tók þá stefnu að sumarið 1930, um líkt leyti og Alþingi hið forna hófst að jafnaði, skyldi minningarhátíð Alþingis haldin á Þingvöllum. Eyðistaður til fjalla „Þingvellir árið 1930 voru í raun „eyðistaður til fjalla“ eins og einn nefndarmanna í undirbúningsnefnd Alþingis komst að orði og í því ljósi var það langt í frá sjálfsagt að hinn forni þingstaður yrði vettvangur fjölmennra hátíðahalda í tilefni af stórafmæli löggjafarsamkomunnar. Margt mælti með því að slík hátíð færi fram í Reykjavík þar sem best aðstaða var til að hýsa gesti, reiða fram veitingar og setja upp sýningar en ærið mörgu þurfti að koma til leiðar svo að fjölmenn útihátíð á Þingvöllum gæti farið vel fram. Nýr vegur til Þingvalla var lagður um Mosfellsdal og Mosfellsheiði, brýr voru byggðar og nýr Þingvallabær reistur. Einnig voru settir upp miklir timburpallar á hátíðarsvæðinu og tjaldbúðir fyrir hátíðargesti risu á Leirunum og efri völlunum, svo nokkuð sé nefnt af þeim umfangsmiklu framkvæmdum sem lagt var í vegna hátíðarinnar,“ segir síðan í greinargerðinni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Undirbúningur að alþingishátíð hafinn Segir vopnahléið framlengt um þrjár vikur Björn drap konu í Póllandi Gönguvæna borgin í samráðsgáttina Hann er vél! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Ferðamaðurinn er enn ófundinn Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Nýjast á mbl.is » Undirbúningur að alþingishátíð hafinn Segir vopnahléið framlengt um þrjár vikur Björn drap konu í Póllandi Gönguvæna borgin í samráðsgáttina Hann er vél! Umræðan Áfram fyrir Hafnarfjörð! Fjölskyldur í forgang strax Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhrif á þjónustu Orkuveitunnar gætu orðið veruleg Fást hvorki svör né samtal vegna Foreldrahúss Börnin vilja vinna meira með fíknivanda sinn Hvað vildu þeir til Mexíkó? Mest lesið Í gær Í vikunni Sólveig furðar sig á ráðningu Karítasar Andlát: Valdimar Örnólfsson Samfylkingin skiptir um kosningastjóra Minnka flugframboðið um 2% vegna ástandsins Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á MS-sjúkdóminn Ólafur Ragnar fer hörðum orðum um grein FT og ESB Þingmaður hætt kominn á Kollafirði Pítsuveisla Kristrúnar ótengd fjarverunni Sviptur ökuréttindum á staðnum Þrír hafa verið náðaðir Borgin fór á mis við nokkra milljarða Alvarlegar ásakanir í Hvalfjarðarsveit Réttur Elfu viðurkenndur í Hæstarétti Leita ferðamanns í Þjórsárdal Flugvél hvolfdi við lendingu Skilur ekki Ríkisendurskoðun: „Ég stýrði verkefninu“ Nærri tuttugu gráða hiti Börn mögulega í hættu í líkamsræktarstöðvum Einn fluttur á slysadeild Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum

Share this article