Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Boða aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 14:30 Boða aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi Gera má ráð fyrir að 192 þúsund Íslendingar verði árið 2030 í ofþyngd eða eigi við offituvanda að stríða sem skerði lífsgæði þeirra. Ljósmynd/Colourbox Guðm. Sv. Hermannsson [email protected] Setja bókamerki Í þingsályktunartillögu, sem Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi til ársins 2030, er sett fram það markmið að offita verði meðhöndluð eins og aðrir langvinnir sjúkdómar, með formlegri greiningu og aðgengi að fjölbreyttum meðferðarúrræðum og endurhæfingu þar sem byggt verði á gagnreyndum aðferðum. Þá verði forvarnir efldar með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Jafnframt verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. Loks að offita meðal barna hér á landi verði ekki lengur algengust á Norðurlöndunum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur skilgreint offitu sem óeðlilega eða of mikla fitusöfnun í líkamanum sem hefur neikvæðar heilsufarslegar afleiðingar. Líkamsþyngdarstuðull (LÞS) hafi verið notaður í rannsóknum síðustu áratugi þar sem fylgst er með stórum hópum fólks yfir lengri tíma. Viðmiðunarmörk offitu eru LÞS 30 eða hærri og viðmiðunarmörk fyrir ofþyngd eru LÞS 25. Fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögunni að vaxandi tíðni offitu sé ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Fjöldi tilfella á heimsvísu hafi farið hratt vaxandi á undanförnum áratugum og sé áætlað að árið 2030 muni 3 milljarðar manna vera í ofþyngd. Ísland sé ekki undanskilið þessari þróun og hafi tíðni offitu hér á landi farið hratt vaxandi líkt og annars staðar í heiminum. Gera megi ráð fyrir að 192.000 Íslendingar verði í ofþyngd eða með offituvanda árið 2030 og að stór hluti þeirra muni lifa við skert lífsgæði vegna langvinnra sjúkdóma sem rekja megi til offitu. Í tillögunni segir að árið 2025 hafi 24% fullorðinna og 7,5% barna hér á landi verið með offituvanda en 60% fullorðinna og 26,4% barna verið í ofþyngd eða með offituvanda. Íslenskir karlmenn séu líklegri til að vera of þungir samanborið við íslenskar konur (75% karla á móti 45% kvenna) og tíðnitölur bendi til þess að ofþyngd sé algengari á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi hlutfall grunnskólabarna með offituvanda aukist úr 4,9% í 6,5% á sama tímabili og tíðni offitu sé hærri meðal einstaklinga með íslenskan bakgrunn en erlendan. Offita meðal barna hafi almennt verið tíðari á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu og mælist nú 9,8% á landsbyggðinni. 26% ungmenna yfir kjörþyngd Skimað er árlega í heilsuvernd barna fyrir frávikum á vaxtarlínuriti hjá nemendum í 1., 7. og 9. bekk og eru að meðaltali um 17.800 börn skimuð á hverju ári. Segir í greinargerð með þingsályktunartillögunni að hlutfall barna í kjörþyngd hafi lækkað úr 78% í 74% á undanförnum tíu árum. 26% allra ungmenna hér á landi séu því yfir kjörþyngd og 8% barna teljist með offituvanda. Því megi áætla að allt að 4.200 íslensk börn stríði við offitu. Þessi aukning offitu meðal barna veki sérstakar áhyggjur þar sem offita á barnsaldri fimmfaldi líkurnar á offitu á fullorðinsárum, ásamt því að hafa veruleg áhrif á lífsgæði barna, heilsu þeirra og þroska. Í þingsályktunartillögunni eru settar fram 22 aðgerðir til að bregðast við þessum vanda. Þar á meðal að sótt verði um aðild að alþjóðlegu samstarfi um offitu barna á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar en Ísland er eina Evrópulandið sem tekur ekki þátt í verkefninu. Segir í greinargerðinni að skimunin í heilsuvernd skólabarna uppfylli skilyrði um mælingar til þátttöku og myndi efla gæði þeirra gagna sem notuð eru við stefnumótun og forvarnir. Þá bjóði þátttaka í verkefninu upp á samanburð á þyngdarþróun barna og unglinga á milli þjóða sem skapi tækifæri til að öðlast dýpri skilning á þróuninni og nýta alþjóðlega þekkingu og reynslu annarra landa til að þróa árangursríkar og gagnreyndar lausnir hér á landi. 1,2 milljarða kostnaður Á fimm ára tímabili áætlunarinnar er gert ráð fyrir um 1,2 milljarða kr. heildarkostnaði. Fram kemur að um helmingur þeirra aðgerða sem lagðar eru fram í tillögunni rúmist innan ramma fjárlaga og feli í sér að tiltekin verkefni séu sett í forgang hjá þeim stofnunum sem ábyrgar eru fyrir aðgerðunum og heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra. Þær aðgerðir sem feli í sér viðbótarkostnað eru reiknaðar á verðlagi ársins 2026. Segir í greinargerðinni að þótt þær feli í sér aukin útgjöld til skamms tíma, t.d. vegna innleiðingar á nýju verklagi eða kerfi, megi fullyrða að mikil hagkvæmni felist í því að sporna við hratt vaxandi tíðni offitu, lágmarka alvarlega fylgisjúkdóma og auka lífsgæði þeirra sem lifa með offituvanda. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mosfellingar staðfesta brotthvarf þjálfarans „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Stigafrádráttur Leicester helst óbreyttur Boða aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi Gjaldskrárhækkanir takmarkast við verðbólgumarkmið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður langt umfram áætlun Ljá máls á þjóðarsátt Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Mosfellingar staðfesta brotthvarf þjálfarans „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Stigafrádráttur Leicester helst óbreyttur Boða aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi Gjaldskrárhækkanir takmarkast við verðbólgumarkmið Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur landlækni vera á villigötum Útilokar hömlur á auðgun úrans Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Líbanon er óaðskiljanlegur hluti af vopnahléi Mest lesið Í gær Í vikunni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Hér er því farið með fleipur“ Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir

Share this article