Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.4.2026 | 16:50 Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Vegna sterkra vindhviða úr austri hjálpaði dráttarbáturinn Lóðsinn Herjólfi að leggjast að bryggju. mbl.is/Óskar Friðriksson Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Líkur á eldingum í kvöld Lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Heiðin í stanslausri skoðun Rúta valt á Kjalarnesi » Fleiri tengdar fréttir Þrátt fyrir vonskuveður og appelsínugular viðvaranir hélt Vestmannaeyjaferjan Herjólfur áætlun sinni fyrripartinn í dag en þurfti liðsinni Lóðsans við að leggjast að bryggju. Áætluðum ferðum Herjólfs til og frá meginlandinu í kvöld og í fyrramálið hefur verið aflýst. Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, segir ferðir morgunsins hafa gengið vel fyrir sig þrátt fyrir eilitlar tafir og versnandi veður. Frétt af mbl.is Fylgstu með lægðinni ganga yfir Svolítið lengi á leiðinni heim „Við fórum eina ferð í morgun og hún gekk bara ágætlega en við vorum þó svolítið lengi á leiðinni heim,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is. „Svo felldum við niður seinni ferðina í dag og ferðina fyrripartinn á morgun vegna veðurs – það verður mikil ölduhæð í fyrramálið sem á svo að ganga niður eftir því sem líður á daginn.“ Appelsínugul veðurviðvörun hefur verið í gildi í Vestmannaeyjabæ frá því klukkan 12:00 í dag, en sterkur vindur hefur blásið yfir Eyjar úr austri með 35-40 metrum á sekúndu og hviðum sem náð hafa allt að 50 m/s . Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tveimur ferðum aflýst Áhöfnin á Herjólfi lét ekki deigan síga þótt blásið hefði hressilega í morgun, heldur ferjaði farþega yfir á meginlandið klukkan 7.00. Ferjan hélt aftur til Eyja um klukkan 10.15 og miðaði ferðinni þá öllu hægar enda var þá siglt á móti vindi. Vegna versnandi sjófærðar var seinni ferð dagsins, sem áætlað var að færi frá Vestmannaeyjum klukkan 16.00 og frá Þorlákshöfn klukkan 19.45, aflýst, sem og fyrri ferð morgundagsins sem leggja átti af stað frá Eyjum í bítið. Skyggnið við Landeyjahöfn í morgun var ekki eins og best væri á kosið, en ferðin gekk þó vel fyrir sig að sögn Ólafs. mbl.is/Óskar Friðriksson Ættu að vera farin að sigla til Landeyja Ólafur segir leiðinlegt hafa verið til sjós þegar Herjólfur hélt aftur til Eyja frá Þorlákshöfn í morgun, en ferðin hafi þó gengið vel. Vindurinn hafi þó orðið til þess að dráttarbáturinn Lóðsinn hafi var fenginn til þess að ýta Herjólfi að bryggju. „Það er ekkert óalgengt að Lóðsinn sé fenginn til að hjálpa Herjólfi að leggjast að bryggju þegar austanvindurinn er eins mikill og verið hefur í dag,“ segir Ólafur. „En það voru engin vandræði sem komu upp og ekkert alvarlegt.“ Hann bætir við að það sé hins vegar heldur óvenjulegt að Herjólfur sigli enn til Þorlákshafnar á þessum árstíma. „Við ættum að vera farin að sigla til okkar hafnar, Landeyjahafnar, en við höfum ekkert náð því nema í gær í blíðviðrinu,“ segir Ólafur. Tengdar fréttir Veður Líkur á eldingum í kvöld Lokað um Mývatns- og Möðrudalsöræfi Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Heiðin í stanslausri skoðun Rúta valt á Kjalarnesi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Í fyrsta sinn í efstu tveimur deildum Englands í 65 ár Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Líkur á eldingum í kvöld Mímir fær að halda áfram þrátt fyrir hótanir Grótta áfram í bikarnum eftir stórkostlegt sigurmark Umræðan Enn ein hótun Trumps Menn láta nýtt vín á nýja belgi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina „Opnið helvítis sundið“ Láta alzheimer ekki stoppa sig Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Bíll valt á Hellisheiði Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina Björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar fjölda bíla Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leiðum haldið opnum eins og hægt verður Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Fylgstu með lægðinni ganga yfir Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Í fyrsta sinn í efstu tveimur deildum Englands í 65 ár Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Líkur á eldingum í kvöld Mímir fær að halda áfram þrátt fyrir hótanir Grótta áfram í bikarnum eftir stórkostlegt sigurmark Umræðan Enn ein hótun Trumps Menn láta nýtt vín á nýja belgi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Búið að loka Reykjanesbraut: Nánast öllu flugi aflýst Heiðin í stanslausri skoðun Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Bíll valt á Hellisheiði Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Veður að ganga eftir: Stormur við Suðurströndina Björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar fjölda bíla Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leiðum haldið opnum eins og hægt verður Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Fólk beðið um að vera ekki á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir Vélsleðamenn lentu í ánni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Myndskeið: Löng bílalest inn í borgina Stal úr görðum og bílum Bíll valt á Hellisheiði Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Fylgstu með lægðinni ganga yfir Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Rukka fyrir vanskráningu á morgun

Share this article