Innlent | Morgunblaðið | 7.4.2026 | 6:00 Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Hvalfjarðargöng verða lokuð á kvöldin frá hálftíu til sex að morgni. Munu þessar lokanir standa yfir frá sunnudagskvöldi til föstudagsmorguns á tímabilinu 7. apríl til 29. maí. mbl.is/Árni Sæberg Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, segir fyrirhugaðar næturlokanir Hvalfjarðarganganna í apríl og maí koma sér mjög illa fyrir marga sem búa á Akranesi en vinna í Reykjavík. Samkvæmt tilkynningu sem birtist á heimasíðu Vegagerðarinnar 2. apríl verða göngin lokuð á kvöldin frá hálftíu til sex að morgni. Munu þessar lokanir standa yfir frá sunnudagskvöldi til föstudagsmorguns á tímabilinu 7. apríl til 29. maí. Framleiðslu á perunum hætt Núverandi lýsing ganganna hefur verið í notkun frá upphafi þeirra og hefur framleiðslu á perunum fyrir þann búnað verið hætt og birgðir að klárast. Því er brýnt að ráðast í heildaruppfærslu á lýsingunni, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar. „Það er náttúrlega mikill fjöldi fólks sem býr á Akranesi og starfar í Reykjavík, margir í vaktavinnu, og þetta kemur sér auðvitað mjög illa fyrir það fólk að það skuli vera lokað svo snemma kvölds,“ segir Valgarður við Morgunblaðið. Valgarður segir alla hafa skilning á því að mikilvægt sé að halda göngunum við og til þess þurfi einhverjar tímabundnar lokanir, en þessar lokanir hafi verið kynntar með of litlum fyrirvara. „Það hefði hugsanlega hjálpað þessu fólki að fá lengri fyrirvara; ef það hefði vitað upp úr áramótum að þetta stæði til á þessum tíma hefði það haft möguleika á að breyta vaktaplaninu og gera ráðstafanir.“ Fylgdarakstur gæti munað miklu Hann segist skilja óánægju þessa fólks og tekur undir að betur hefði mátt standa að þessu. „Fylgdarakstur í einhverja klukkutíma að kvöldi væri strax betra, þannig að fólk sem er kannski búið að vera í vinnu fram á kvöld fyrir sunnan göng hafi möguleika á að komast heim til sín. Ef vegagerðin hefði til dæmis tök á því að vera með fylgdarakstur frá hálftíu fram að miðnætti held ég að það myndi strax breyta miklu fyrir marga.“ Valgarður segir bæjarstjóra Akraness, Harald Benediktsson, hafa verið í sambandi við Vegagerðina vegna málsins og býst hann við því að það samtal haldi áfram eftir páska. „Vonandi er bara hægt að finna einhverjar leiðir svo þetta komi ekki svona illa við svona marga,“ segir Valgarður. „Við ætlum ekkert að vera í því að skammast í Vegagerðinni, við áttum okkur á því að það þarf að halda göngunum við en svona hluti þarf að undirbúa betur og kynna betur fyrir fólki sem reiðir sig á þessar samgöngur. Við eigum í góðu samstarfi við Vegagerðina og höldum því áfram eftir páskafrí.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Næsta lægð á leiðinni Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Snýst um að bæta ímyndina út á við Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Umræðan Áttavitinn þarf að virka Mínar beztu þakkir, kæra Þorgerður! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Snýst um að bæta ímyndina út á við Hellisheiðin lokuð Vinna að því að endurbóka farþega Mest lesið Í gær Í vikunni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Enda er þetta svört kómedía Fylgstu með lægðinni ganga yfir Vinsælir vorboðar á hjúkrunarheimilinu Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Von á þrumum næstu klukkustundina Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » Næsta lægð á leiðinni Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Snýst um að bæta ímyndina út á við Snoturt Sigvaldahús selt á 175 milljónir Umræðan Áttavitinn þarf að virka Mínar beztu þakkir, kæra Þorgerður! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Snýst um að bæta ímyndina út á við Líkur á eldingum í kvöld Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Mest lesið Í gær Í vikunni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Myndskeið: Fjúkandi bárujárn veldur tjóni Enda er þetta svört kómedía Fylgstu með lægðinni ganga yfir Vinsælir vorboðar á hjúkrunarheimilinu Herjólfur þurfti aðstoð: Tveimur ferðum aflýst Féll af hestbaki og flutt með sjúkrabíl Von á þrumum næstu klukkustundina Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Leigja út heimili á ríflega milljón