Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir að fyrirhugaðar lokanir á Hvalfjarðargöngum í apríl og maí komi til með að hafa umtalsverð áhrif. „Ekki aðeins fyrir fólk og fyrirtæki á Akranesi eða norðan Hvalfjarðar, heldur allt norðan- og vestanvert landið,“ segir Haraldur. Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur mánudags til föstudags frá klukkan 21:30 til 06:00 að morgni frá 7. apríl til 29. maí. Haraldur segir að áhrifa muni gæta sérstaklega þar sem lokað er snemma að kvöldi. Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags. „Við munum eiga samtal við Vegagerðina og ræða hvort hægt sé að vinna með þessa stöðu,“ segir hann. „Það myndi breyta miklu að fá fylgdarakstur að minnsta kosti hluta af lokunartímanum,“ segir Haraldur sem tekur fram að fylgdarakstur hafi áður verið hluti af lokunum Vegagerðarinnar í göngunum. Hvalfjarðargöng 2 séu orðin nauðsynleg Haraldur segir að einnig skipti miklu máli að akstur neyðarbíla og sjúkraflutninga geti gengið greiðlega fyrir sig þrátt fyrir vinnu í göngunum. „En við erum ekki óvön takmörkunum á umferð vegna viðhalds,“ segir hann. „Við fögnum líka góðu viðhaldi og endurbótum.“ Lokunin er fyrirhuguð vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum og eins og áður stendur mun hún standa yfir í um sjö vikur. „Þetta er langt tímabil lokunar,“ segir Haraldur. Umferð, notkun og mikilvægi Hvalfjarðarganga sé mikið hagsmunamál fyrir íbúa á Akranesi. „Okkar vilji og áskorun er að hafist verði handa við undirbúning og framkvæmdir við Hvalfjarðargöng 2 þar sem þessi göng anna ekki lengur á álagstímum allri umferð,“ segir Haraldur. Bent er á í tilkynningu Vegagerðarinnar að hjáleið sé um Hvalfjörðinn sem bætir um klukkutíma við aksturinn. „Þó að Hvalfjörðurinn sé fallegur þá er ekki ábyrgt að vísa mikilli umferð um hann,“ segir Haraldur.