This article describes kinetic military attacks using drones and missiles, not a software vulnerability or technical threat. As such, the required technical details for a vulnerability summary—such as CVSS score, affected versions, or patch information—are not applicable to this content.
Í það minnsta þrjú börn voru drepin í árásum Rússa og Úkraínumanna í nótt. Foreldrar og tólf ára sonur þeirra voru drepin í drónaárás Úkraínumanna í Vladimír-héraði í Rússlandi. Fimm ára dóttir foreldranna lifði árásina af en var flutt á sjúkrahús með brunasár. Fjögur voru drepin í árás Rússa á Kiyv, höfuðborg Úkraínu. Þeirra á meðal var eitt barn. Í annarri drónaárás Rússa, í Dnipropetrovsk-héraði, var ellefu ára drengur drepinn og fimm aðrir særðust þegar kviknaði í húsi. Þrír voru drepnir og tólf særðust í annarri árás Rússa, á rútu á biðstöð í borginni Nikopol á víglínunni milli herja Rússa og Úkraínu.