Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Rússlandsher gerði stórfelldar árásir víðs vegar um Úkraínu í dag

This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing a large-scale Russian offensive involving hundreds of drones and dozens of missiles targeting Ukraine. The article focuses on geopolitical context, including stalled peace talks and accusations of territorial expansion, and does not contain any information pertaining to a technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds.
Read Full Article →

Að minnsta kosti 14 voru drepnir í árásum Rússlandshers á Úkraínu í dag, sem hefur á síðustu vikum bætt í árásarþunga sinn að degi til. Á sjötta hundrað drónum og tugum eldflauga var beint að skotmörkum víða um land. Úkraínumenn hafa lagt til vopnahlé yfir páskana en rússnesk yfirvöld segjast ekki hafa fengið skýra tillögu þess efnis. Forsetinn Volodymyr Zelensky og utanríkisráðherrann Andriy Sybiga voru þungorðir í garð Rússa sem þeir segja að hefðu átt að draga úr árásum en auka í aðdraganda hátíðarinnar. Úkraínumenn segja Rússa vilja draga stríðið á langinn til að sölsa undir sig meira landsvæði og að þeir hafi ekki nokkurn áhuga á friði. Friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjanna hafa tafist vegna þátttöku þeirra í árásum á Íran. Zelensky kveðst hafa boðið bandarískum erindrekum til Kyiv svo halda megi viðræðum áfram. Þaðan gætu þeir svo farið til Moskvu, enda hafi þríhliða viðræður engu skilað.

Share this article