Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einn handtekinn vegna kannabisræktunar í nágrenni Ísafjarðar

  • What: Police in Iceland arrest someone for cannabis cultivation
  • Impact: Local law enforcement is cracking down on illegal cannabis activities
Read Full Article →

Lögreglan á Vestfjörðum handtók einn eftir að upp komst um kannabisræktun í nágrenni Ísafjarðar í gær. Í tilkynningu segir að lögreglumenn hafi orðið varir við megna kannabislykt í eftirliti í gær. Þeir hafi rakið lyktina að húsi í nágrenninu og þegar þangað var komið kom í ljós að innandyra var „allnokkur“ kannabisræktun. Einn var handtekinn í kjölfarið og hin ræktuðu efni ásamt ræktunarbúnaði voru gerð upptæk. Lögreglumenn voru í eftirliti þegar þeir urðu varir við megna kannabislykt.Aðsent / Bartosz Kozik

Share this article