Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fór betur en á horfðist

Read Full Article →

Ásgrímur Halldórsson, nýtt uppsjávarskip Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði, sem er í smíðum hjá Karstensens skipasmíðastöðinni á Skagen í Danmörku, slitnaði frá bryggju þegar mikið óveður gekk yfir Jótland á páskadag. Skipið lá við Tollbryggjuna í Skagen en sleit sig laust og rak út í höfnina. Sigurður Ægir Birgisson, stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess, segir að betur hafi farið en á horfðist. Skipið tók niðri á sandgrynningum og náðist aftur á flot í fyrradag. Það er nú komið að bryggju á ný. Engar skemmdir urðu á skipinu. Stormurinn Dave gekk yfir Jótland á páskadag og munu margir minnast hans sem eins af þeim ofsafengnustu á síðari tímum á þessum slóðum. Það gekk ýmislegt á þennan daginn. Sigurður Ægir segir að talað sé um veðrið sem versta storm í yfir 20 ár á þessum slóðum. Talsverðar tafir hafa orðið á afhendingu Ásgrím Halldórssonar. Skrokkur skipsins var smíðaður í Póllandi af Karstensens og hann síðan dregnn til Skagen til fullnaðarfrágangs. Til stóð að afhenda hann í nóvember á síðasta ári. Sigurður Ægir segir að nú sé loks farið að sjá fyrir endann á verkefninu. Hann á von á því að Skinney-Þinganes taki við því á vormánuðum. Í Skagens Avis sagði annan í páskum að þótt enn sé „ferskur“ vindur er versta hættan liðin hjá. Engu að síður hvetja yfirvöld áfram til varúðar, þar sem lausir hlutir og skemmdar byggingar geta enn valdið hættu. Tré, girðingar, ílát, ljósastaurar, skilti, þakflísar og sólhlífar er meðal þess sem „Dave“ hefur komist í snertingu við auk þess að slíta Ásgrím Halldórsson frá bryggju. Þó að stormurinn hafi valdið lögreglunni annríki og margir í Norður-Jótlandi hafi orðið fyrir tjóni á húsum, þökum, trjám og girðingum, er fjöldi þeirra sem hafa slasast takmarkaður. Þetta segir lögreglustjórinn Lau Larsen hjá lögreglunni á Norður-Jótlandi við TV2 Nord. Að hans sögn er heildarmyndin sú að stormurinn hefur ekki haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi fólks. „Í heildina slapp við tiltölulega vel. Við höfum aðeins lent í fáeinum tilfellum þar sem fólk hefur slasast og meiðslin eru minniháttar – oftast vegna þess að fólk hefur orðið fyrir hlutum sem hafa fokið, segir hann. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article