Þrír byssumenn hófu skothríð nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl í Tyrklandi rétt eftir klukkan tíu í morgun. Lögregla skaut einn til bana og handsamaði tvo, að því er borgarstjóri Istanbúl greindi frá. Tveir lögreglumenn særðust í skotbardaga við árásarmennina. Innanríkisráðherra Tyrklands segir stjórnvöld vita hverjir árásarmennirnir séu, tveir þeirra séu bræður og annar þeirri sé með dóm á bakinu fyrir fíkniefnamisferli. Breska ríkisútvarpið BBC hafði eftir bæði Reuters og APF-fréttaveitunni að engir ísraelskir embættismenn væru í Tyrklandi á þessari stundu, hvorki á sendiskrifstofunni í Istanbúl né í sendiráðinu í Ankara. Utanríkisráðuneyti Ísraels fordæmdi árásina og kallaði hana hryðjuverk. „Við erum þakklát tyrkneskum öryggissveitum fyrir skjót viðbrögð við árásinni. Ísraelskar sendinefndir um allan heim hafa orðið fyrir ótal ógnum og hryðjuverkaárásum. Hryðjuverk fæla okkur ekki frá.“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins á samfélagsmiðlinum X.