Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Skotárás nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl

Read Full Article →

Skothvellir heyrðust nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl í Tyrklandi rétt eftir klukkan tíu. Samkvæmt staðarmiðlum eru þrír látnir og tveir lögreglumenn særðir. Dómsmálaráðuneyti Tyrklands hefur staðfest að það sé að rannsaka skotárás nærri ísraelsku sendiskrifstofunni en hefur ekki gefið frekari upplýsingar. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að engir ísraelskir embættismenn séu í Tyrklandi á þessari stundu, hvorki á sendiskrifstofunni í Istanbúl né í sendiráðinu í Ankara. BBC hefur þetta eftir bæði Reuters og AFP-fréttaveitunni.

Share this article