Erlent | mbl | 8.5.2026 | 12:12 Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Við íslenska skálann í morgun. mbl.is/Elínborg Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Mótmæli hafa sett sinn svip á opnunardaga Feneyjatvíæringsins, mikilvægustu myndlistarhátíðar í heiminum, en í dag, á lokadegi foropnunar hátíðarinnar, stendur fjöldi þjóðarskála lokaður til að mótmæla þátttöku Ísraela á hátíðinni. Aðstandendur íslenska skálans, þar sem sýning Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur Pocket Universe er til sýnis, gengu ekki svo langt að loka skálanum í dag en hengdu þó upp plaköt við inngang hans þar sem stuðningi við Palestínu er lýst yfir og síónismi fordæmdur. Belgíski skálinn var lokaður. mbl.is/Elínborg Á þriðja hundrað þátttakendur á tvíæringnum Lokun skálanna er hluti af verkfalli þeirra sem starfa í ítalska menningargeiranum til að mótmæla þátttöku ísraelska ríkisins á listahátíðinni en samtökin List ekki þjóðarmorð (ANGA) standa að því. Belgíski skálinn er meðal þeirra sem eru lokaðir í dag en í yfirlýsingu sem hafði verið hengd upp fyrir utan hann í morgun kemur fram að 237 sýningarstjórar, listamenn og starfsmenn Feneyjatvíæringsins í ár taki þátt í verkfallinu. Meðal annarra skála sem eru lokaðir í dag er Austurríski skálinn sem hefur vakið hvað mesta athygli á hátíðinni í ár en gestir hafa síðustu daga beðið í margra klukkustunda röðum til að berja sýningu listamannsins Florentinu Holtzinger augum. Í tilkynningu sem hafði verið komið fyrir framan skálann í morgun kemur fram að aðstandendur skálans komi frá 12 löndum og að sumir þeirra hafi ákveðið að taka þátt í verkfallinu og því verði sýningin lokuð í dag. Listamaðurinn að baki hollenska skálans útskýrir ákvörðun sína um að loka skálanum fyrir gestum. mbl.is/Elínborg Styðja verkfallið Íslenski skálinn þar sem sýning Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur, Pocket Universe, er til sýnis er ekki einn þeirra sem eru lokaðir í dag. Nokkur plaköt hafa hins vegar verið hengd upp við inngang hans. „Engin listþvætti. Enginn þjóðarmorðsskáli. Við stöndum í samstöðu með verkfallinu í ítalska menningargeiranum. Við krefjumst þess að þjóðarmorði, stríðsglæpum og kerfisbundinni eyðileggingu lífs í Palestínu verði bundinn endir. Við fordæmum notkun menningar til að gera ríkisofsóknir og aðskilnaðarstefnu eðlilegar. Við neitum að láta eins og ekkert sé. Við köllum eftir einangrun og viðskiptabanni á Ísrael. Við neitum að þegja. Við köllum eftir endi á hernámi Palestínu. Nei, við heimsvaldastríðum,” segir til að mynda á einu þeirra og á öðru stendur: „Frjáls Palestína, afnám síonisma.“ Síðustu daga hafa þúsundir beðið í röð fyrir utan austuríska skálann. mbl.is/Elínborg Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Myndskeið: Karólína og Cecilía fóru á kostum Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Gerð verður krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald Population of Iceland grows by 520 Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Fyrir hvern er borgin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ársæll: „Ráðherrar hafa bara alræðisvald“ „Afskaplega lítil“ hætta fyrir almenning Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Nemendum með A stórfjölgar milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Tengdi ristil konu við leggöngin Fundu 30 tonn af kókaíni við Kanaríeyjar Tveir Bretar smitaðir af hantaveirunni Þrír látnir og margra saknað eftir eldgos í Indónesíu Ný aðferðafræði fingralangra „Afskaplega lítil“ hætta fyrir almenning Árásir á báða bóga skömmu fyrir sigurdaginn Flugfreyjan greindist ekki með veiruna Verkamannaflokkurinn beið afhroð Kínversk kona gripin fyrir njósnir Flugfreyja lögð inn með einkenni hantaveiru Hantaveiran er ekki eins og Covid Trump: Einn af þeim allra stærstu er látinn 30 farþegar yfirgáfu skipið á Sankti Helenu Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Fær ekki að leggjast að bryggju Stungin til bana á leið í skólann Maður sem lést var í flugi stuttu áður Danskur farþegi kominn í sóttkví Þrír fluttir til Hollands og skipið siglir í átt að Tenerife Þrír látnir um borð í skipi sem fer til Íslands Tók 25 milljónir út í leyfisleysi Tengdi ristil konu við leggöngin Maður sem lést var í flugi stuttu áður Sonur norsku sendierindrekanna fyrirfór sér Flugfreyja lögð inn með einkenni hantaveiru Hurð nærri hælum Drápsmennirnir 15 og 16 ára Hvað er hantaveira? Trump: Einn af þeim allra stærstu er látinn Nýjast á mbl.is » Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Myndskeið: Karólína og Cecilía fóru á kostum Ólíklegt að MV Hondius komi til Íslands Gerð verður krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald Population of Iceland grows by 520 Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Fyrir hvern er borgin? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hantaveiran er ekki eins og Covid Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Árás á versta mögulega tíma: Verulega neikvæð áhrif Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Mest lesið Í gær Í vikunni Tengdi ristil konu við leggöngin Fundu 30 tonn af kókaíni við Kanaríeyjar Tveir Bretar smitaðir af hantaveirunni Þrír látnir og margra saknað eftir eldgos í Indónesíu Ný aðferðafræði fingralangra „Afskaplega lítil“ hætta fyrir almenning Árásir á báða bóga skömmu fyrir sigurdaginn Flugfreyjan greindist ekki með veiruna Verkamannaflokkurinn beið afhroð Kínversk kona gripin fyrir njósnir Flugfreyja lögð inn með einkenni hantaveiru Hantaveiran er ekki eins og Covid Trump: Einn af þeim allra stærstu er látinn 30 farþegar yfirgáfu skipið á Sankti Helenu Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Fær ekki að leggjast að bryggju Stungin til bana á leið í skólann Maður sem lést var í flugi stuttu áður Danskur farþegi kominn í sóttkví Þrír fluttir til Hollands og skipið siglir í átt að Tenerife Þrír látnir um borð í skipi sem fer til Íslands Tók 25 milljónir út í leyfisleysi Tengdi ristil konu við leggöngin Maður sem lést var í flugi stuttu áður Sonur norsku sendierindrekanna fyrirfór sér Flugfreyja lögð inn með einkenni hantaveiru Hurð nærri hælum Drápsmennirnir 15 og 16 ára Hvað er hantaveira? Trump: Einn af þeim allra stærstu er látinn Loka