Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grindvíkingar jöfnuðu við Njarðvíkinga

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir 6. apríl 2026 kl. 21:11ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grind­vík­ing­ar jöfn­uðu við Njarð­vík­inga Jóhann Páll Ástvaldsson DeAndre Kane. Mummi Lú Grindavík jafnaði metin í einvígi sínu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Staðan er nú 1-1 eftir 84-86 sigur þeirra gulklæddu. Njarðvík var 49-44 yfir í hálfleik en Grindavík átti sterkan þriðja leikhluta sem vannst 18-24. Að lokum sigruðu Grindvíkingar með tveimur. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá Njarðvíkingum með 30 stig og fimm fráköst. Jordan Semple var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig. Fyrir 12 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Lög­regla skaut einn til bana eftir skot­árás í Ist­an­búl Lögregla skaut einn til bana eftir skotárás í Istanbúl í Tyrklandi. Þrír byssumenn hófu skotárás nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í borginni. Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Nærri 200 atvik hjá björg­un­ar­sveit­um í ill­viðr­inu Yfir 770 sinntu verkefnum hjá björgunarsveitum víða um landið yfir páskahelgina. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitum heilt yfir hafa gengið vel að sinna verkefnum í ofsaveðrinu í gær. Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hlaut 13 ára dóm fyrir gróf kyn­ferð­is­brot gegn barn­ungri stjúp­dótt­ur sinni og sam­býl­is­konu Maður á fertugsaldri hefur hlotið 13 ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni og móður hennar. Fyrir 23 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Hafði tölu­verð­ar áhyggj­ur að komast ekki til Fær­eyja í gær Íslenska kvennalandsliðið í handbolta komst til Færeyja í gær þrátt fyrir að flugið þeirra hefði verið fellt niður. Landsliðsþjálfarinn hafði um tíma talsverðar áhyggjur af því að undirbúningur liðsins yrði af skornum skammti. Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Nice Air stefn­ir á flug frá Ak­ur­eyri í haust Flugfélagið Nice Air mun ekki bjóða upp á millilandaflug frá Akureyri fyrr en í fyrsta lagi í lok október. Ástandið í Mið-Austurlöndum er sögð meginástæða tafanna. Fyrir 49 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Sögu­legri ferð í kring­um tungl­ið lokið Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Noregur Þarf að sitja áfram á þingi þrátt fyrir að hafa hótað gagn­rýn­anda sínum Hálfíslenski þingmaðurinn Mímir Kristjánsson segir sig ekki langa sérstaklega til að sitja áfram á norska Stórþinginu, eftir að upp komst um ógnandi skilaboð sem hann sendi á óbreyttan borgara. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Fleiri óánægð en ánægð með rík­is­stjórn­ina Í fyrsta skipti á kjörtímabilinu eru fleiri óánægð en ánægð með störf ríkisstjórnarinnar. Óánægja með störf hennar hefur nær tvöfaldast frá því á fyrstu mánuðunum eftir að hún var mynduð. Óánægja með stjórnarandstöðuna minnkar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Yf­ir­gnæf­andi óánægja með borg­ar­stjóra, meiri­hluta og minni­hluta Meirihluti borgarbúa telur borgarstjóra, meirihlutann í borgarstjórn og minnihlutann alla hafa staðið sig illa í starfi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Skot­árás nærri ísra­elsku sendi­skrif­stof­unni í Ist­an­búl Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Skothvellir heyrðust nærri ísraelsku sendiskrifstofunni í Istanbúl í Tyrklandi rétt eftir klukkan tíu. Samkvæmt staðarmiðlum eru þrír látnir og tveir lögreglumenn særðir. Dómsmálaráðuneyti Tyrklands hefur staðfest að það sé að rannsaka skotárás nærri ísraelsku sendiskrifstofunni en hefur ekki gefið frekari upplýsingar. Á vef breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að engir ísraelskir embættismenn séu í Tyrklandi á þessari stundu, hvorki á sendiskrifstofunni í Istanbúl né í sendiráðinu í Ankara. BBC hefur þetta eftir bæði Reuters og AFP-fréttaveitunni. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf 90 sagt upp í þremur hóp­upp­sögn­um Brynjólfur Þór Guðmundsson 90 starfsmenn misstu vinnuna í hópuppsögnum í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Stofnuninni var tilkynnt um þrennar hópuppsagnir í mars. 60 var sagt upp í tveimur hópuppsögnum í mannvirkjagerð. 30 var sagt upp í einni hópuppsögn í verslun. Fólkið er með misjafnlega langan uppsagnarfrest. Uppsagnirnar taka því gildi á tímabilinu frá maí til júlí. Iðnaðarmaður við störf. Mynd úr safni. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Einn hand­tek­inn vegna kann­a­bis­rækt­un­ar í ná­grenni Ísa­fjarð­ar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögreglan á Vestfjörðum handtók einn eftir að upp komst um kannabisræktun í nágrenni Ísafjarðar í gær. Í tilkynningu segir að lögreglumenn hafi orðið varir við megna kannabislykt í eftirliti í gær. Þeir hafi rakið lyktina að húsi í nágrenninu og þegar þangað var komið kom í ljós að innandyra var „allnokkur“ kannabisræktun. Einn var handtekinn í kjölfarið og hin ræktuðu efni gerð upptæk ásamt ræktunarbúnaði. Lögreglumenn voru í eftirliti þegar þeir urðu varir við megna kannabislykt. Aðsent / Bartosz Kozik Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varn­ar­kerf­ið virk­aði sem skyldi þegar eld­inga­veð­ur olli raf­magns­leysi Vel gekk að koma kerfum aftur af stað eftir að eldingu laust niður í Búrfellslínu í gærkvöld, segja forsvarsmenn rafveitna. Öryggisstjóri Landsnets segir varnarkerfið hafa farið samstundis af stað og virkað sem skyldi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Sjáðu æf­ing­ar Thelmu í heims­bik­arn­um Myndskeið með gólfæfingum Thelmu Aðalsteinsdóttur í úrslitum í heimsbikarmóti í Egyptalandi um helgina hafa farið eins og eldur í sinu um netheima. Thelma endaði í 6. sæti á þessu sterka móti. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vita­skipti hjá Byggða­list­an­um Byggðalistinn hefur kynnt framboðslista sinn fyrir kosningar í vor. Eyþór Fannar Sveinsson verður oddviti listans. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Börn drepin í dróna­árás­um Rússa og Úkra­ínu­manna Rússar og Úkraínumenn héldu áfram drónaárásum í nótt og í morgun. Í það minnsta þrjú börn voru meðal þeirra sem voru drepin í árásunum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sós­í­al­ist­ar birta lista í borg­inni Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands vegna borgarstjórnarkosninga í vor liggur fyrir. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Óskar og Hörður ósam­mála: „Ætl­arðu að segja - þú verður að borða úti á svölum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR mætti í Bikarkvöld eftir sigur sinna manna gegn Val, 4-2. Hann ræddi við þau Hörð Magnússon, Helgu Margréti Höskuldsdóttur og Gunnar Birgisson um markvörðinn Arnar Frey Ólafsson. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Taíland Földu tæp tvö tonn af dópi undir káli Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglumenn fundu mikið magn fíkniefna í pallbíl sem var stöðvaður á laugardag. 900 kíló af ketamíni og 700 kíló af metamfetamíni fundust falin undir káli á palli bílsins. Ökumaðurinn sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin gegn því að fá 100 þúsund baht greidd. Það er andvirði tæpra 400 þúsund króna. Hans bíður nú að lágmarki fimmtán ára fangelsisvist. Lögregla sagði að fíkniefnunum hefði verið smyglað inn í landið en sagði ekkert um það hvaðan þau hefðu komið. Lögreglumenn standa vörð við sýningu á fíkniefnunum. EPA / NARONG SANGNAK Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið Vest­firð­ing­um gafst tæki­færi á að koma með hug­mynd­ir inn í dag­skrá Rásar 2 Hugmyndadagar RÚV eru haldnir tvisvar á ári, að hausti og vori, þar sem öllum landsmönnum gefst tækifæri á að koma með hugmyndir að dagskrárefni í miðla RÚV. Í ár voru hugmyndadagarnir í fyrsta skipti á faraldsfæti. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Margir vegir lok­að­ir fyrir norðan og austan Víðtækar vegalokanir eru á norðan- og austanverðu landinu. Unnið er að mokstri á vegum. Innanlandsflugi seinkar í morgunsárið. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvasst en heldur hlýtt Hitinn gæti farið í tíu stig í dag. Allhvasst verður þó framan af degi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tveir dreng­ir drepn­ir í gagn­kvæm­um dróna­árás­um Markús Þ. Þórhallsson Ellefu ára drengur var drepinn í drónaárás Rússlandshers á Dnipropetrovsk í Úkraínu og sjö ára drengur og foreldrar hans voru drepin í úkraínskri drónaárás á héraðið Vladimir í nótt. Íbúðahús í Odesu stórskemmt eftir loftárás 6. apríl. EPA / IGOR MASLOV Héraðsstjórinn segir á Telegram fimm ára systur hans liggja á sjúkrahúsi með brunasár. Herir beggja ríkja gerðu þungar árásir í nótt sem kveiktu elda, skemmdu byggingar og raforkulínur. Rússar hafa gert loftárásir meira og minna hverja nótt frá upphafi innrásarstríðsins og Úkraínumenn hafa lengi svarað í sömu mynt. Undanfarnar vikur hefur Úkraínuher aukið árásarþungann á orkuinnviði í Rússlandi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Orðum prýdd­ur her­mað­ur sak­að­ur um grimmi­leg morð í Afgan­ist­an Einn virtasti fyrrverandi hermaður Ástralíu var handtekinn í morgun vegna gruns um að hafa myrt óvopnaða fanga meðan hann þjónaði í Afganistan á árunum 2009 til 2012. Alríkislögreglustjóri segir hans bíða ákæra fyrir stríðsglæpi. Hann neitar sök. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Vance heim­sæk­ir Orban í stuðn­ings­skyni Bandaríski varaforsetinn JD Vance er á leið til fundar við ungverska forsætisráðherrann Viktor Orban, meðal annars til að færa honum stuðningskveðjur frá Donald Trump forseta í aðdraganda þingkosninga næsta sunnudag. Ósigur gæti beðið Orbans. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Úlfur sem beit konu í Ham­borg frjáls ferða sinna Markús Þ. Þórhallsson Úlfinum var sleppt en þarf að bera eftirlitsbúnað. Mynd úr safni. dr.dk / Patrik Stollarz Úlfi hefur verið sleppt aftur út í náttúruna eftir að hann beit konu í þýsku borginni Hamborg í liðinni viku. Það var í fyrsta skipti í meira en þrjátíu ár sem manneskja verður fyrir barðinu á úlfi í Þýskalandi, samkvæmt umfjöllun Bild. Dýraverndaryfirvöld fe

Share this article