Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grindavík í lykilstöðu gegn Njarðvík

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík í lyk­il­stöðu gegn Njarð­vík Einar Örn Jónsson Grindavík vann Njarðvík öðru sinni í undanúrslitarimmu liðanna í Bónusdeild kvenna í körfubolta í kvöld, 94-75. Njarðvík varð deildarmeistari í vetur á meðan Grindavík varð í 5. sæti og því er staðan aðeins óvænt. Grindavík getur komist áfram í úrslitarimmuna með sigri í þriðja leik liðanna á mánudag. Keflavík og Haukar mætast öðru sinni í hinu einvíginu annað kvöld. Haukar unnu fyrsta leikinn. Abby Beeman var stigahæst hjá Grindavík í kvöld með 24 stig. RÚV / Mummi Lú Fyrir 11 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Valur og Vík­ing­ur unnu leiki kvölds­ins Einar Örn Jónsson Tveir leikir voru í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Víkingur lagði Stjörnuna 3-2 og Valur vann FH 3-0. Víkingur fór í annað sætið með sigrinum, upp fyrir Stjörnuna. Víkingur er með 7 stig, tveimur færri en KR. Valur er með 6 stig eins og Stjarnan en FH er með 1 stig. Víkingur-Stjarnan: 0-1 Örvar Eggertsson 5' 1-1 Elías Már Ómarsson 21' 1-2 Andri Rúnar Bjarnason 52' 2-2 Elías Már 54' 3-2 Óskar Borgþórsson 83' Valur-FH: 1-0 Adam Ægir Pálsson 9' 2-0 Hörður Ingi Gunnarsson 14' 3-0 Hólmar Örn Eyjólfsson 37' Gylfi Þór Sigurðsson RÚV / Mummi Lú Fyrir 46 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Barna­menn­ing­ar­dag­ar í fyrsta skipti á Suð­ur­landi Barnamenningardagar eru nú haldnir í fyrsta skipti á Suðurlandi en boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og unglinga í öllum sveitarfélögum landshlutans. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hefja um­fangs­mikla rann­sókn á al­var­legu lest­ar­slysi Yfirvöld í Danmörku hafa hafið umfangsmikla rannsókn á alvarlegu lestarslysi á Sjálandi í morgun. Ekki er vitað hvað olli slysinu og fimm eru í lífshættu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ís­lensk­ar vef­versl­an­ir selja stinn­ing­ar­hun­ang og litla frænda Spice Hunang með stinningarlyfjum og efni sem veitir kannabisáhrif er meðal varnings sem hver sem er getur keypt á íslenskum vefsíðum. Réttarefnafræðingur segir ómögulegt að segja hvar slík efni séu framleidd. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þór vann í fyrsta leikn­um á nýjum velli Einar Örn Jónsson Þór tók á móti Fram á Akureyri í Bestu deild karla í dag. Leikurinn var fyrsti heimaleikur Þórs á nýju gervigrasvelli þeirra. Tímamótunum fagnaði Þór með því að vinna Fram með einu marki gegn engu. Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu. Þór er með sex stig eftir þrjá leiki en Fram með fjögur. Stuðningsmenn Þór höfðu ástæðu til að gleðjast í dag Rúv / Mummi Lú Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump færir mari­jú­ana niður um al­var­leika­flokk Marijúana verður ekki lengur í sama flokki og heróín og amfetamín og því verður auðveldara fyrir Bandaríkjamenn að nota það í lækningaskyni. Bandaríkjastjórn heitir því að skoða enn frekari breytingar á flokkun marijúana. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Fögn­uðu sumri með reið­sýn­ingu Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands héldu upp á svokallaðan Skeifudag í dag með reiðkeppni og reiðsýningu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Drottn­ing vaknar úr dvala Sumarið tók vel á móti þessari hunangsflugudrottningu sem vaknaði úr dvala á Egilsstöðum í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál „Við erum með um­hverf­is­ráð­herra sem virð­ist engan áhuga hafa á um­hverf­is­vernd“ Græna gangan var endurvakin í dag, þrettán árum eftir að hún fór síðast fram. Fyrrum þjálfari karlalandsliðsins í handbolta var aðalræðumaður og gagnrýndi meðal annars umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að hafa engan áhuga á umhverfisvernd. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Starfs­mað­ur tengd­ur siða­nefnd­ar­mál­inu rekinn og síðan end­ur­ráð­inn Haraldur Daði Ragnarsson, sem rekinn var úr starfi lektors við Háskólann á Bifröst, hefur verið endurráðinn sem kennslustjóri. Miklar deilur hafa skekið Háskólann á Bifröst undanfarna mánuði. Brottrekstur Haraldar tengdist ekki þeim málum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkra­ína fær loks 90 millj­arða evra lán frá ESB Nýr stuðningspakki ESB til Úkraínu felur í sér 90 milljarða evra lán og gert er ráð fyrir að tveimur þriðju verði varið til varnarmála. Úkraínuforseti segir mikilvægt að ríkið fái ekki aðeins táknræna heldur fulla aðild að ESB. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Fundu gull­arm­bönd frá vík­inga­tím­an­um – „Þetta er alveg galið“ Hugrún Hannesdóttir Diego Þrjú gullarmbönd sem talin eru vera frá víkingatímanum hafa fundist í Himmerland á Norður-Jótlandi í Danmörku. Danska ríkisútvarpið greinir frá og ræðir við Torben Sarauw, sérfræðing í menningararfi. Hann segir íbúa í Himmerland hafa skilað inn tveimur armböndum í góðu ástandi. Fornleifafræðingar hafi svo farið á sama stað og fundið það þriðja. „Þetta er alveg galið, við höfum aldrei lent í öðru eins,“ er haft eftir Sarauw. „Í þessu tilfelli eru þetta þrjú heil gullarmbönd og það er mjög sérstakt. Við fáum næstum aldrei gullmunum skilað inn til okkar.“ Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Stór­sig­ur KR í eyjum Einar Örn Jónsson KR sótti ÍBV heim til eyja í hádeginu í dag og vann örugglega með 6 mörkum gegn 2. KR komst í 6-0 áður en ÍBV lagaði stöðuna í lok leiks. KR er með 9 stig eftir 3 leiki og í efsta sæti. Stjarnan getur náð þeim með sigri gegn Víkingi í Víkinni í kvöld. ÍBV er með 1 stig. Mörk leiksins skoruðu: 0-1 Arnór Ingvi Traustason 5' 0-2 Hrafn Tómasson 17' 0-3 Aron Sigurðarson 29' 0-4 Gabríel Hrannar Eyjólfsson 45+2' 0-5 Aron Sigurðarson 59' 0-6 Alexander Rafn Pálmason 62' 1-6 Viggó Valgeirsson 65' 2-6 Sesar Örn Harðarson 77' KR-ingar fagna marki gegn Keflavík í 1. umferð Mummi Lú Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Ljós­mynd ársins – „Að­skil­in af ICE“ World Press Photo hafa valið ljósmynd ársins sem sýnir dætur ríghalda í föður sinn meðan hann er handtekinn af bandarískum innflytjendayfirvöldum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Dut­er­te ákærð­ur fyrir glæpi gegn mann­kyni Talið er að allt að 30.000 hafi verið tekin af lífi í nafni herferðar gegn fíkniefnum í stjórnartíð Rodrigos Dutertes. Dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins samþykktu einróma að ákæra hann fyrir glæpi gegn mannkyni. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Meiri­hluti síð­ustu rík­is­stjórn­ar hefur yf­ir­gef­ið hið pól­it­íska svið Aðeins þrír ráðherrar af þeim þrettán sem gegndu embættinu árið 2024, áður en ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur komst til valda, sitja nú á þingi. Einn snýr þó aftur í sumar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tókust á um Kópa­vogs­mód­el­ið Oddvitar í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi hafa skiptar skoðanir á Kópavogsmódelinu svokallaða. Þeir tókust á um leikskólamálin í oddvitaumræðum í vikunni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Líbanon Saka Ísra­els­her um stríðs­glæpi þegar blaða­mað­ur lést í loft­árás Líbanar saka Ísraelsher um að hafa framið stríðsglæp eftir að einn blaðamaður var drepinn og annar særðist í loftárás á suðurhluta landsins. Herinn hafi beint árásum gegn blaðamönnunum og hindrað björgunarstarf. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Valdi­mar Örn­ólfs­son látinn Valdimar Örnólfsson var einn af atkvæðamestu íþróttafrömuðum síðustu aldar og mikill skíðakappi. Hann varð meðal annars Íslandsmeistari á skíðum 1952, kenndi leikfimi í Ríkisútvarpinu um áratugaskeið og fékk riddarakross Fálkaorðunnar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Viljum ekki þessa eitrun stétta­skipt­ing­ar og mis­skipt­ing­ar“ Aðfluttir félagsmenn Eflingar á leigumarkaði verða fyrir tvöföldu arðráni, segir formaður félagsins. Stjórn Eflingar leggur til að settar verði hömlur á leigumarkaðinn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Ís­lenskt kaffi ræktað í Garð­yrkju­skól­an­um á Reykj­um í Ölfusi Opið hús er í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi í dag. Þar er margt í boði, meðal annars alíslenskt kaffi. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sum­ar­ið fer sveita­lega af stað í fimm­unni Það borgar sig ekki að fara of geyst inn í sumarið og þess vegna förum við varlega af stað með klassísku sveita- og stemningsrokki frá Kacey Musgraves, Beck, Kevin Morby, Kurt Vile og Jack White. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Gleði­legt sumar frá Und­ir­öld­unni Það er einungis einn Undirölduþáttur þessa vikuna vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fara fram um miðjan maí. Það er nú samt kósí stemning hjá tónlistarfólkinu sem komst að en það voru meðal annars Bubbi Morthens og Stafrænn Hákon. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Stefán og Andrea unnu Víða­vangs­hlaup ÍR Einar Örn Jónsson Hið árlega Víðavangshlaup ÍR fór fram í miðborg Reykjavíkur í dag. Löng hefð er fyrir þessu hlaupi á sumardaginn fyrsta og var þetta í 111. sinn sem hlaupið er. Í ár voru rúmlega 800 hlauparar skráðir til keppnji og að venju voru hlaupnir 5 kílómetrar. Í karlaflokki sigraði Stefán Pálsson úr Ármanni á 15:18 mínútum. Í kvennaflokki varði Andrea Kolbeinsdóttir titil sinn frá í fyrra og bætti eigið met frá í fyrra. Hún hljóp í ár á 16:02 mínútum og bætti met sitt um 16 sekúndur. Stefán og Andrea teljast jafnframt Íslandsmeistarar í 5 kílómetra götuhlaupi. Andrea Kolbeinsdóttir varði titil sinn í Víðavangshlaupi ÍR í dag og bætti eigið met frá í fyrra. Facebook / Frjálsíþróttasamband Íslands Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Þetta eru leik­tím­ar Ís­lands á EM Einar Örn Jónsson Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur gefið út leiktíma í undanriðlum Evrópumóts kvenna í desember. Annað Evrópumótið í röð er Ísland meðal þátttökuþjóða. Ísland leikur í A-riðli mótsins sem verður í rúmensku borginni Oradea, nærri ungversku landamærunum. Ísland mætir Slóveníu í fyrsta leik 3. desember klukkan 16:30. Laugardaginn 5. desember er komið að Svartfjallalandi, líka klukkan 16:30. Lokaleikur riðilsins er svo gegn Ungverjalandi mánudaginn 7. desember og er sá leikur klukkan 19. Að þeim leik loknum halda tvö efstu lið riðilsins áfram í milliriðil en hin tvö halda heim á leið. Allir leikir

Share this article