Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jafna fyrra met yfir sætanýtingu í mars

  • What: Icelandair reports passenger numbers and occupancy rates
  • Impact: Increased passenger numbers and occupancy in March 2026
Read Full Article →

Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10% fleiri en í mars á síðasta ári. Sætanýting var 83,5% og jafnaði met síðasta árs fyrir marsmánuð, samkvæmt tilkynningu Icelandair til Kauphallarinnar. Af farþegum Icelandair í mars voru 39% á leið til Íslands, 22% frá Íslandi, 32% voru tengifarþegar og 7% ferðuðust innanlands. „Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um 16% og farþegum frá Íslandi um 32%. Þetta er í takt við áherslur félagsins á þá markaði sem skila hæstum tekjum hverju sinni og sést árangurinn meðal annars í því að tekjur á hvern seldan sætiskílómetra jukust um 11%, en breytt samsetning farþega hafði þar mest áhrif.“ Stundvísi var 75,4% en Icelandair segir veður hafa haft umtalsverð áhrif á stundvísi í mánuðinum. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 45% og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum jukust um 7% Mynd tekin úr tilkynningu Icelandair. „Við sjáum áframhaldandi góðan árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þessi stefna skilar sér í minni árstíðasveiflu og gerir okkur kleift að beina framboðinu á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni. Í mánuðinum var 45% aukning í leiguflugsstarfseminni okkar sem styður einnig við minnkun árstíðasveiflunnar. Í mánuðinum hófum við flug til Faro í suðurhluta Portúgals og hafa viðskiptavinir tekið þessum nýja áfangastað mjög vel,“ segir Bogi Nils Bogason , forstjóri Icelandair. „Eldsneytisverð hækkaði hratt í mánuðinum í kjölfar átaka í Mið-Austurlöndum. Við höfum brugðist við með margvíslegum aðgerðum, meðal annars ráðist í kostnaðaraðhald, endurskoðað fargjöld og aðlagað framboð í öðrum ársfjórðungi.“

Share this article