- What: Heathrow airport sees 5% drop in passengers
- Impact: Changes in air travel demand
Farþegum Heathrow-flugvallar í London fækkaði um 5% í apríl miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Guardian en þar segir að átökin í Miðausturlöndum hafi haft áhrif á eftirspurn eftir millilandaflugi. Alls fóru um 6,7 milljónir farþega um flugvöllinn í nýliðnum aprílmánuði en það er mesti samdráttur hjá Heathrow frá því í mars á síðasta ári. Stjórnendur flugvallarins segja fækkunina endurspegla áhrifin sem stríðið í Íran hefur haft á millilandaflug og skammtímabreytingar á ferðaáætlunum farþega. Sjá einnig Farþegum Icelandair fjölgaði um 5% í apríl Á sama tíma jókst hins vegar fjöldi tengifarþega um 10% milli ára, þar sem fjöldi ferðalanga á leið til Asíu og Eyjaálfu hafi frekar kosið að fljúga um Heathrow í stað flugvalla við Persaflóa á borð við Dubai og Doha. Thomas Woldbye, forstjóri Heathrow, segir að þrátt fyrir samdráttinn sé sterk eftirspurn eftir almennum flugferðum og að eldsneytisbirgðir séu stöðugar að svo stöddu. Flugvöllurinn hyggst þó endurskoða farþegaspá sína fyrir árið 2026 í næsta mánuði.