Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fækkað sæta­fram­boði um 2 milljónir á 2 vikum

  • What: Airlines reduce flight capacity due to fuel concerns and price increases
  • Impact: Affects global travel and airline operations
Read Full Article →

Á síðustu tveimur vikum hafa flugfélög víða um heim alls dregið saman flugframboð sitt í maí um sem nemur 2 milljónum sæta, m.a. vegna áhyggja um framboð á flugeldsneyti og áhrifa olíuverðshækkana. Alþjóðleg flugfélög hafa fellt niður þúsundir flugferða. Í mörgum tilfellum hafa félög skipt yfir í sparneytnari vélar fyrir tiltekin áætlunarflug, samkvæmt frétt Financial Times. Heildarframboð sæta í maímánuði hefur dregist saman úr 132 milljónum í 130 milljónir, samkvæmt tölum frá greiningarfyrirtækinu Cirium. Turkish Airlines, sem hefur varað við áhrifum takmarkaðs framboðs á flugeldsneyti, er það félag sem hefur dregið mest úr sætaframboði á síðustu tveimur vikum. Þar á eftir kemur Air China. Flugfélög frá Miðausturlöndum, þar á meðal Emirates, Etihad og Qatar Airways, eru meðal félaga sem hafa þurft að draga framboð verulega saman. Jafnframt kemur fram að Lufthansa sé það félag sem hafi þurft að fella niður flestar flugferðir á síðustu mánuðum en þýska flugfélagið aflýsti 20 þúsund ferðum frá maí til október vegna hækkunar eldsneytisverðs. Frá því að stríðið í Íran hófst í lok febrúar hefur verð flugeldsneytis tvöfaldast. Það hefur neytt flugfélög til að hækka fargjöld. Eins hafa lokanir flugvalla í Miðausturlöndum, sem tengja um þriðjung flugferða frá Evrópu til Asíu, haft mikil áhrif á rekstur ýmissa flugfélaga. Air France sagði að félagið hafi verið beðið um að bæta ekki við flugferðum til Singapúr eða Haneda-flugvallar í Tókýó, þar sem þessar tvær stóru tengimiðstöðvar í Asíu leitast við að takmarka notkun flugeldsneytis. Í umfjölluninni er bent á að bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hafi dregið framboð sitt saman um 3,5% á öðrum ársfjórðungi. Icelandair tilkynnti nýlega um að flugfélagið hefði ákveðið að draga flugframboð saman um 2% frá miðjum apríl til loka júní vegna hækkunar olíuverðs.

Share this article