Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Air­bus ekki af­hent færri þotur síðan 2009

Read Full Article →

Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus afhenti 114 flugvélar á fyrsta ársfjórðungi 2026, sem samsvarar 16% fækkun frá sama tímabili í fyrra. Félagið hefur ekki afhent jafnfáar flugvélar á fyrstu þremur mánuðum ársins frá árinu 2009, að því er kemur fram í frétt Bloomberg . Airbus afhenti 60 þotur í mars, samanborið við 35 í febrúar. Fjöldi flugvéla sem félagið afhenti í janúar var aðeins 19, og höfðu þær ekki verið færri í einum mánuði frá Covid-árinu 2020. Forsvarsmenn Airbus hafa borið fyrir sig að áframhaldandi vandamál varðandi framboð á bolgrindum (e. fuselage panel) flugvéla og skorts á hreyflum hefðu gert félaginu erfitt fyrir. Airbus hafði spáð því að félagið myndi afhenda um 870 flugvélar í ár, en sú spá var gefin út áður en stríðið í Íran hófst. Stríðsátökin hafa haft veruleg áhrif á flugiðnaðinn, m.a. vegna mikilla verðhækkana á flugeldsneyti og sum af stærstu flugfélögum heims hafa þurft að skala niður flugframboð. „Til að ná þessu markmiði þyrfti Airbus að hraða verulega afhendingum á þeim níu mánuðum sem eftir eru á árinu, sem hefði í för með sér mjög afturhlaðna áætlun,“ sagði greinandi Deutsche Bank, í bréfi til viðskiptavina á föstudaginn. „Það er enn fræðilega mögulegt.“

Share this article