Greiningarfyrirtækið Akkur segir að uppgjör Icelandair fyrir fyrsta ársfjórðung hafi verið umfram væntingar og að þetta hafi verið besti fyrsti fjórðungur félagsins a.m.k. síðastliðin tíu ár. „EBITDA og EBIT hlutföll hafa aldrei verið hærri (minna neikvæð) á fyrsta fjórðungi og sýnir að stærðarhagkvæmni og tiltekt á kostnaðarhlið er að skila sér þótt vissulega megi alltaf gera betur,“ segir í viðbrögðum Akkurs við uppgjörinu. Icelandair tapaði 45,3 milljónum dala á fyrsta ársfjórðungi 2026, eða sem nemur 5,6 milljörðum króna, samanborið við 44 milljóna dala tap á sama tímabili í fyrra. Rekstrarafkoma (EBIT) batnaði hins vegar um 8,9 milljónir dala eða um 1,1 milljarð króna og nam 53,3 milljónum dala. Þá jukust tekjur flugfélagsins á fjórðungnum um 21% milli ára og námu 42,9 milljörðum króna. Sjá einnig 5,6 milljarða tap hjá Icelandair en 21% tekjuvöxtur Akkur segir EBITDA og EBIT hafa verið töluvert yfir væntingum. Sé þó horft framhjá sölu á B767 flugvél þá sé afkoman í samræmi við væntingar. Uppgjörið sé engu að síður sögulegt sterkt heilt yfir. Greiningarfyrirtækið vekur athygli á því að einingatekjur Icelandair hafi þróast með hagfelldum hætti undanfarin misseri. Einingakostnaður án eldsneytis (CASK less fuel) hafi aldrei verið lægri á fyrsta ársfjórðungi frá því að félagið hóf að birta þann mælikvarða á miðju ári 2021. „Munurinn á einingatekjum og einingakostnaði (RASK-CASK) hefur sjaldan verið minni á fyrsta ársfjórðungi.“ Þá telur greiningarfyrirtækið að breytingar á leiðarkerfi hafi skilað árangri þegar horft sé til þess að sætanýting hafi sjaldan verið betri á sama tíma og þróun einingatekna- og kostnaðar er að þróast með jákvæðum hætti. Horfur fyrir annan ársfjórðung undir væntingum Í afkomutilkynningu Icelandair segir að á öðrum ársfjórðungi sé gert ráð fyrir lakari afkomu en á sama tíma í fyrra vegna hærri eldsneytiskostnaðar, þrátt fyrir áframhaldandi aukningu einingatekna. Akkur segir að horfur fyrir annan ársfjórðung séu lítillega undir væntingum sínum. Í síðustu afkomuspá sinni hafi verið gert ráð fyrir að afkoma á öðrum ársfjórðungi yrði óbreytt frá fyrra ári. „Samkvæmt félaginu er ástæðan fyrst og fremst hærra eldsneytisverð en það getur verið fljótt að breytast í báðar áttir.“ Greiningarfyrirtækið segir einnig að rekstrarkostnaður á fyrsta ársfjórðungi hafi verið lítillega yfir væntingum sem skrifist að mestu leyti á afgreiðslu-, lendingar- og yfirflugsgjöld sem voru 8 milljónum dala yfir væntingum. „Tekjumyndun hefur verið mjög sterkt hjá félaginu og eru vandræði þess fyrst og fremst á kostnaðarhliðinni.“