Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá 23% tekju­aukningu hjá Icelandair

Read Full Article →

Greiningar­fyrir­tækið Akkur gerir ráð fyrir að tekjur Icelandair aukist um 23% milli ára á fyrsta árs­fjórðungi 2026. Í af­komu­spá félagsins er gert ráð fyrir að heildar­tekjur nemi 1.819 milljónum dala á árinu 2026, saman­borið við 1.741 milljón dala árið 2025. Í skýringum Akkurs kemur fram að tekju­aukningin á fyrsta fjórðungi skýrist einkum af 13% aukningu í seldum sætiskíló­metrum og um 9% hærra meðal­verði. Jafn­framt er gert ráð fyrir að bæði EBITDA og EBIT batni milli ára, sam­hliða fram­legðar­aukningu. Sjá einnig Jafna fyrra met yfir sætanýtingu í mars Sam­kvæmt spánni verður EBITDA Icelandair 167 milljónir dala árið 2026, saman­borið við 157 milljónir dala árið 2025. EBIT er spáð neikvæðu um 5 milljónir dala á árinu 2026, saman­borið við 17 milljóna dala tap árið áður. Akkur gerir ráð fyrir að af­koma fyrir skatta verði neikvæð um 12 milljónir dala á árinu 2026, en það væri bati frá 20 milljóna dala tapi fyrir skatta árið 2025. Þá er gert ráð fyrir að nettóaf­koma verði neikvæð um 10 milljónir dala, óbreytt frá fyrra ári. Í skýringum með spánni segir jafn­framt að launa­hlut­fall hækki milli ára vegna veikari Bandaríkja­dals, þar sem hluti kostnaðar fellur til í ís­lenskum krónum.

Share this article