Viðskipti | mbl | 29.4.2026 | 9:01 | Uppfært 10:56 Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Bogi segir að snörp hækkun olíuverðs að undanförnu hafi ekki haft teljandi áhrif á afkomuna í fjórðungnum en meiri áhrif þessara hækkana muni sjást frá og með öðrum ársfjórðungi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Setja bókamerki Tap flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam 5,6 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við 6,1 milljarðs króna tap á sama tíma á síðasta ári , en jákvæð gengisáhrif komu til lækkunar á tapi síðasta árs Í fréttatilkynningu kemur fram að met hafi verið slegið í tekjum sem voru 42,9 milljarðar króna og jukust um 21% frá fyrra ári. EBIT rekstrartap var 6,6 milljarðar sem er bæting um 1,1 milljarð króna milli ára samkvæmt tilkynningunni. Bæting á EBIT hlutfalli varð einnig töluverð samkvæmt tilkynningunni en það er nú neikvætt um 15,4% samanborið við 21,7% neikvætt hlutfall á síðasta ári. Þá segir í tilkynninguni að hærri tekjur á hvern seldan sætiskílómetra og metsætanýting hafi skilað 7% hækkun á einingatekjum. Bætt skilvirkni Bætt skilvirkni skilaði félaginu óbreyttum einingakostnaði milli ára þrátt fyrir umtalsverðar launahækkanir og óhagstæða gengisþróun segir í tilkynningunni. Þá er sagt frá því að félagið hafi verið meðal stundvísustu flugfélaga í Evrópu á fyrsta ársfjórðungi 2026, með 82,0% stundvísi (OTP). Lausafjárstaða er sögð sterk, 77 milljarðar króna í lok ársfjórðungs sem er aukning um 14,2 milljarða króna samanborið við sama ársfjórðung 2025. Árangur á mörgum sviðum Bogi Nils Bogason forstjóri segir í tilkynningunni að náðst hafi árangur á mörgum sviðum á ársfjórðungnum. „Við skiluðum met tekjum sem endurspeglar áherslur okkar á markaðina til og frá Íslandi sem skila betri framlegð við núverandi markaðsaðstæður en tengiflug yfir hafið. Við jukum flugframboð um 13% sem er í takt við stefnu okkar að nýta innviðina okkar betur. Þrátt fyrir þessa aukningu náðum við met sætanýtingu í fjórðungnum og vorum jafnframt eitt stundvísasta flugfélag í Evrópu þó svo talsverðar raskanir hafi orðið á flugáætlun vegna veðurs á Íslandi í marsmánuði. Tekjur af fraktstarfsemi jukust einnig á milli ára og afkoma af leiguflugi var góð í fjórðungnum. Gengisáhrif og launahækkanir höfðu neikvæð áhrif á kostnaðarþróun en við héldum áfram að leggja áherslu á stundvísi og hagræðingu í rekstri.“ Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. María Matthíasdóttir Bogi segir að snörp hækkun olíuverðs að undanförnu hafi ekki haft teljandi áhrif á afkomuna í fjórðungnum en meiri áhrif þessara hækkana muni sjást frá og með öðrum ársfjórðungi. „Til að bregðast við þessari stöðu höfum við dregið flugframboð saman um rúmlega 2% frá miðjum apríl til loka júní. Þá eru hækkanir á farmiðaverði óhjákvæmilegar og fargjöld hafa verið hækkuð frá því að þessi þróun eldsneytisverðs hófst. Þetta hefur þó ekki haft mælanleg áhrif á eftirspurn eins og staðan er í dag.“ Ytri aðstæður hafa áhrif Í tilkynningunni segir forstjórinn að ýmsar ytri aðstæður hafi áhrif á flugrekstur og því sé mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika til lengri tíma í sem flestum rekstrarþáttum, svo sem kjarasamningum sem nú séu lausir. „Áherslurnar í samningaviðræðum við flugstéttirnar eru að félagið geti áfram boðið eftirsótt störf í flugrekstri á Íslandi með því að tryggja samkeppnishæfni félagsins, styðja við vöxt leiðakerfisins og flotans, ásamt því að auka rekstrarlegan sveigjanleika. Auk þess á félagið í samtali við íslensk stjórnvöld um mikilvægi þess að verja samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að evrópsku regluverki, sérstaklega er varðar ETS kerfið og önnur loftslagsgjöld. Fjárhagsstaða félagsins er sterk og lausafjárstaðan hækkaði um 107 milljónir USD miðað við sama tíma í fyrra sem gerir okkur vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru, ásamt áframhaldandi áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu í rekstri. Að lokum vil ég þakka starfsfólki fyrir seiglu og frábæra vinnu, sérstaklega í kringum krefjandi aðstæður vegna veðurs í marsmánuði þar sem allir lögðust á eitt til að leysa úr flókinni stöðu með öryggi og hagsmuni farþega að leiðarljósi.“ Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Heiðraðir fræðimenn og sjávarútvegurinn Sigurður Már Jónsson Danir í leit að íslenskri spillingu Fleira áhugavert Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð Ríkisstjórnin bregst við stöðu samgangna til Eyja Furstadæmin segja skilið við OPEC Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Furstadæmin segja skilið við OPEC Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Furstadæmin segja skilið við OPEC Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Milljónir munu missa vinnuna Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Furstadæmin segja skilið við OPEC Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Vísbendingar um kólnandi hagkerfi Pistlar » Sigurður Már Jónsson Heiðraðir fræðimenn og sjávarútvegurinn Sigurður Már Jónsson Danir í leit að íslenskri spillingu Fleira áhugavert Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða Teikningar: Hér vill ríkið byggja íbúðir Mesta magn í sögunni Vesturlandsvegur skal varinn Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Furstadæmin segja skilið við OPEC Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Framleiðsla hafin á leigubílum Teslu Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Furstadæmin segja skilið við OPEC Hótel Lóa bætist í hóp KNOX Hotels Lyfjaskammtarinn sannað gildi sitt María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Leigulausnir taka við rekstri Hótels Norðurlands Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Milljónir munu missa vinnuna Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Milljónir munu missa vinnuna Ekkert verður af kísilveri og Thorsil gjaldþrota Ölgerðin lagði ríkið í Somersby-máli Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um 50 Orkuveitan fær 10 milljónir evra frá ESB Indó hækkar verðskrá fyrir gjaldeyri María nýr markaðsstjóri hjá Tengi Furstadæmin segja skilið við OPEC Nefna nýjan sæstreng eftir Íslendingasögupersónu Vísbendingar um kólnandi hagkerfi