Innlent | mbl | 7.4.2026 | 19:24 Spyrja sig um hæfi eftir bílslys á skólatíma Tæpar þrjár vikur eru síðan atvikið átti sér stað. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon/Garðabær Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Foreldrar í Urriðaholtsskóla í Garðabæ hafa fengið lítil svör og skýringar frá skólayfirvöldum og yfirvöldum í Garðabæ eftir að skólarúta á vegum Garðabæjar lenti í umferðaróhappi á Álftanesi. Foreldrarnir spyrja sig um hæfi fyrirtækisins sem sinnir skólaakstrinum og furða sig á viðbrögðum bæjaryfirvalda í málinu. Þann 17. mars lenti skólarúta á vegum Garðabæjar í umferðaróhappi á Álftanesi. 21 barn á ellefta og tólfta ári voru um borð í rútunni. Að sögn Sigurðar Jökuls Ólafssonar, föður tólf ára stúlku í Urriðaholtsskóla, var atvikið ekki tilkynnt til neyðarlínunnar heldur voru börnin send fótgangandi frá afleggjaranum á Bessastöðum og í Álftaneslaug. Sigurður segir að nokkur meiðsli hafi orðið á sumum börnum, m.a. heilahristingur og kjálkabrot. Spyr hvort vandað hafi verið til verka Börnin kláruðu sundtímann og ekki var athugað með líðan þeirra fyrr en tveimur klukkutímum eftir atvikið, þegar börnin voru komin aftur í skólann. Þá var það skólahjúkrunarfræðingur sem skoðaði börnin „Maður spyr sig hvort það hafi verið vandað nógu mikið til verka þegar þetta var boðið út og það var samið við þetta fyrirtæki,“ segir Sigurður. Sigurður Jökull Ólafsson. Forkastanleg vinnubrögð Fyrirtækið Hópferðamiðstöðin annast skólaakstur Garðabæjar. Sigurður segir önnur minni atvik hafa komið upp í kringum skólaaksturinn sem hafi vakið spurningar, t.d. hafi skólarútan ekið af stað án barna í einu tilviki. Að sögn Sigurðar hafa foreldrar í Urriðaholtsskóla reynt að ná sambandi við yfirvöld í Garðabæ með takmörkuðum árangri. Þau hafa kallað eftir frekari upplýsingum um óhappið. Að mati Sigurðar eru vinnubrögð Garðabæjar í málinu forkastanleg. „Við viljum í fyrsta lagi að það verði skoðað gaumgæfilega hvernig var staðið að þessu útboði og hvort það voru gerðar tilhlýðilegar kröfur og hvort umrætt fyrirtæki hafi fullnægt þessum kröfum. Svo viljum við fá einhverja fullvissu um að þetta sé í einhverju betra ferli,“ segir Sigurður aðspurður. Deila áhyggjum víðar á landinu Sigurður lýsti áhyggjum sínum í tölvupósti til fjölmiðla og bæjaryfirvalda. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir í svari nú síðdegis að hann hafi skilning á áhyggjunum. Hann segir að á morgun verði send út boð á upplýsingafund fyrir foreldra varðandi málið. Eftir fyrri umfjöllun fjölmiðla um málið hafa foreldrar sem hafa stigið fram fengið skilaboð þar sem foreldrar annarra barna á landinu deila sömu áhyggjum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spyrja sig um hæfi eftir bílslys á skólatíma Skammast sín fyrir hegðun Svíanna Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Sporting – Arsenal, staðan er 0:0 Keflavík - Valur, staðan er 0:0 Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrír fá 5 ár fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot Margvíslegt foktjón varð víða um land Myndir: Stórbrotið útsýni Artemis-áhafnarinnar Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Þak fauk af í heilu lagi Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Spyrja sig um hæfi eftir bílslys á skólatíma Skammast sín fyrir hegðun Svíanna Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Sporting – Arsenal, staðan er 0:0 Keflavík - Valur, staðan er 0:0 Umræðan Áttavitinn þarf að virka ESB-aðild er annars eðlis en annað alþjóðasamstarf Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margir vegir lokaðir Myndir: Stórbrotið útsýni Artemis-áhafnarinnar Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum níðingi Þak fauk af í heilu lagi Mest lesið Í gær Í vikunni Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Þak fauk af í heilu lagi Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Næsta lægð á miðvikudag Illa búnir bílar verða sektaðir: 20 þúsund á dekk Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Tíu ár frá Höskuldarviðvörun Bíll valt á Hellisheiði Flugslysaáætlun virkjuð á Akureyri Líkur á eldingum í kvöld Innanlandsflugi aflýst og vegir á óvissustigi Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun