Fjórir voru drepnir í skotárás í skóla í suðurhluta Tyrklands í dag. Tuttugu voru særðir í árásinni. Yfirvöld segja að nemandi hafi komið með byssur föður síns í skólann, farið inn í tvær skólastofur og skotið, að því er virtist tilviljanakennt, á nemendur og kennara. Önnur skotárás var framin í Tyrklandi í gær þegar fyrrum nemandi réðist vopnaður inn í skóla og særði sextán og svipti sig lífi. Öryggissveitir við skóla í Sanliurfa í Tyrklandi, í gær 14. apríl 2026. Fyrrum nemandi særði 16 manns.EPA / Stringer