Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skaut og særði sjö í skóla

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Skaut og særði sjö í skóla Brynjólfur Þór Guðmundsson Í það minnsta sjö eru sárir eftir skotárás í skóla í suðaustanverðu Tyrklandi í morgun. Árásarmaðurinn er nemandi við skólann sem notaði veiðiriffil við árásina, sagði fréttastofa NTV. Sérsveit lögreglu var send að skólanum. Hún náði að forða nemendum og starfsfólki úr skólanum. Lögregla hefur verið í sambandi við árásarmanninn og reynir að fá hann til að gefast upp. Tyrkneskir lögreglumenn. Safnmynd. AP / Khalil Hamra Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf 440 millj­arða verð­mæti frá tækni- og hug­verka­iðn­aði Brynjólfur Þór Guðmundsson Tækni- og hugverkaiðnaður skilaði rúmlega 440 milljörðum króna í verðmætasköpun á síðasta ári, samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins. Sú tala er fengin út með því að reikna launakostnað og hagnað í greininni. Greinin velti í allt nær 700 milljörðum króna. Útflutningstekjur námu 369 milljörðum og voru 19 prósent af heildarútflutningstekjum Íslands. Þær hafa áttfaldast frá 2008, samkvæmt greiningu samtakanna. Þau segja að tækni- og hugverkaiðnaður hafi slegið sjávarútvegi við þegar kemur að útflutningi. Undir tækni- og hugverkaiðnað falla auk annarra fyrirtæki í upplýsingatækni, gagnaver, tölvuleikjagerð, lyfjaframleiðsla og hátækniiðnaður. Marel er eitt þeirra fyrirtækja sem teljast til tækni- og hugverkaiðnaðar. RUV / Anton Brink Fyrir 36 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Ol­íu­tekj­ur Rússa tvö­föld­uð­ust í mars Brynjólfur Þór Guðmundsson Olíuútflutningur Rússa stórjókst í síðasta mánuði eftir að Bandaríkin drógu úr viðskiptahömlunum gegn landinu. Stjórnvöld í Washington ákváðu að leyfa ríkjum að kaupa rússneska olíu til 11. apríl, með þeim fyrirvara að heimildin ætti við um olíu sem væri þegar um borð í skipum á sjó úti. Þetta gerðu Bandaríkjamenn til að mæta olíuverðshækkunum vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Tekjur Rússa af olíuútflutningi nærri tvöfölduðust milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaorkumálastofnuninni. Tekjurnar námu 19 milljörðum dollara í mars. Rússneska olíuflutningaskipið Anatoli Kolodkin þegar það kom til hafnar á Kúbu. EPA / Stringer Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Skrif­að í sand: „Ég veit ekki alveg hvern­ig hann hefði getað unnið úr þessu, í alvöru talað“ Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um sjálfsævisögu Karls Sigurbjörnssonar biskups sem nefnist Skrifað í sand. Þau sjá margt fallegt í frásögn hans en eru ósammála um inntak kaflans um erfið ár á biskupsstóli. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hæsti­rétt­ur verður að dæma um hvar maður bjó í raun og veru Þriggja mánaða gjaldfrjáls búseta manns á breskum herragarði er inntakið í deilu hans og íslenska ríkisins um hvar hann átti að greiða skatta. Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni mannsins um að taka áfrýjun hans til greina. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kanada Flokk­ur Carneys kominn hrein­an meiri­hluta á þing­inu Brynja Dögg Friðriksdóttir Mark Carney forsætisráðherra Kanada. AP/The Canadian Press / Christinne Muschi Frjálslyndi flokkur Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, tryggði sér hreinan meirihluta í þingkosningunum í Kanada í gær eftir að hafa sigrað í tvennum aukakosningum. Frjálslyndi flokkurinn vann einnig flest þingsæti í kosningunum á síðasta ári en náði þó ekki þingmeirihluta í þeim kosningum. Kanadamenn kusu í þremur umdæmum í gær til að fylla laus þingsæti og Frjáslyndir unnu í öllum umdæmunum. Carney hefur boðað aukin útgjöld í varnarmálum því Kanada geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin fyrir öryggi. Hann hefur ferðast víða í embætti sínu sem forsætisráðherra til að reyna að koma á nýjum viðskiptasamningum í Asíu og Evrópu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Banda­rík­in og Indó­nes­ía gera varn­ar­samn­ing Brynja Dögg Friðriksdóttir Varnarmálaráðherra Indónesíu, Sjafrie Sjamsoeddin, og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/FR33460 AP / Kevin Wolf Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna til kynnti um stóran varnarsamnig við Indónesíu eftir fund hans með varnarmálaráðherra Índónesíu Sjafrie Sjamsoeddin í gær. Varnarsamstarfið felur í sér hernaðaruppbyggingu, þjálfun, æfingar og samstarf í aðgerðum samkvæmt sameiginlegri tilkynningu varnarmálaráðherranna. Stjórnvöld Indónesíu segja samninginn tækifæri til að byggja upp indónesíska herinn og styrkja varnir landsins. Indónesar eru sagðir búa yfir mesta herstyrk þjóða í Suðaustur-Asíu samkvæmt bandarísku greiningarvefsíðunni Global Firepower Defense. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Gælu­dýr­in þurfa öryggi eins og við Gæludýrin okkar geta lent á vergangi og sum hver orðið heimilislaus. Dýrahjálp reynir að koma þeim í fóstur þar til varanlegt heimili býðst. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Ró­leg­heita­veð­ur í dag en hvess­ir í nótt Hægur austlægur vindur verður á landinu. Bjart með köflum og þurrt norðan heiða. Skúrir annars staðar. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Stór varða í átt að HM í Bras­il­íu Kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Liðin eru sem stendur í baráttu um þriðja sætið sem veitir sæti í umspili á mótinu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Kín­verskt tank­skip sigldi í gegnum Hormúss­und þrátt fyrir bann Banda­ríkj­anna Tankskipið er fyrsta skipið sem siglir um Hormússund þrátt fyrir herkví Bandaríkjanna. Bandaríkin settu ferðabann á skip um íranskar hafnir í gær. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Ung­ling­ur keyrði rútu frá Noregi til Sví­þjóð­ar Brynja Dögg Friðriksdóttir Sænskur lögreglubíll í Stokkhólmi. Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / Henrik Montgomery Sænska lögreglan stöðvaði rútu skráða í Noregi í nótt í bænum Stenungsund norður af Gautaborg í Svíþjóð. Lögreglunni hefur væntanlega brugðið þegar hún sá betur bílstjórann, en undir stýri sat 14 ára norskur unglingur sem hafði keyrt rútuna frá Noregi og yfir landamærin til Svíþjóðar. Ekki hefur verið uppgefið hvar ferð hans hófst en frá Stenungsund að norsku landamærunum eru um 138 kílómetrar. Sænska ríkisútvarpið SVT segir að unglingurinn hafi verið settur í varðhald en honum verði komið til foreldra sinna í samvinnu við norsk yfirvöld. Hann á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa keyrt rútuna enda nokkur ár í að hann fái bílpróf. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Rubio fundar með sendi­herr­um Ísra­els og Líban­ons í Wash­ing­ton Fyrstu viðræður milli Ísraels og Líbanon hefjast í Bandaríkjunum í dag. Sendiherrar landanna ræða hvort hægt sé hefja beinar friðarviðræður milli Ísraela og Líbana. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem reynt er að koma á langvarandi friði milli þjóðanna. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ragnar ósátt­ur við út­skýr­ing­ar á upp­sögn Ragnar Freyr Ingvarsson læknir fékk uppsagnarbréf frá Landspítalanum í gær. Hann segir að ekki sé heil brú í skýringum framkvæmdastjóra Landspítala á ástæðum þess að honum var sagt upp starfi fyrir skömmu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Palads-bíóið fær fimm nýjar hæðir Ráðgert er að stækkunin hýsi hótel og veitingastað en kvikmyndasýningar verða áfram á fyrstu hæðum hússins. Kvikmyndahúsið er eitt þekktasta kennileiti miðborgar Kaupmannahafnar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Eitrað fyrir gælu­dýr­um í Kjós Tvö atvik hafa komið upp nýverið þar sem talið er að eitrað hafi verið fyrir gæludýrum með frostlegi í pylsubitum í sumarbústaðahverfi í Kjós. Málin eru litin alvarlegum augum enda brot á dýraverndunarlögum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vara­for­set­inn leiður yfir tapi Orbans Brynja Dögg Friðriksdóttir J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna. AP/AP POOL / Jacquelyn Martin J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði að hann væri leiður yfir að Viktor Orban, fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands, hefði tapað þingkosningunum í Ungverjalandi í gær. Vance sagði þó að hann lofaði því að stjórnvöld í Washington myndu vinna með eftirmanni Orbans, Peter Magyar, leiðtoga Tisza-flokksins. Vance sagðist viss um að þeir myndu vinna vel saman. Varaforsetinn heimsótti Ungverjaland í síðustu viku fyrir kosningarnar og lýsti yfir stuðningi við Viktor Orban. 13. apríl 2026 kl. 22:18INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Mér finnst leið­in­legt að Guð­mund­ur hafi farið úr Flokki fólks­ins“ Forsætisráðherra segir leiðinilegt að Guðmundur Ingi hafi sagt sig úr Flokki fólksins. Það breyti því þó ekki að samstarfið muni halda áfram og verði jákvætt. 13. apríl 2026 kl. 21:38INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Segir ekkert barn hafa orðið fyrir of­beldi á fóst­ur­heim­il­inu á Gauks­stöð­um Maður sem rak fósturheimili á Gauksstöðum í Garði segir ekkert barn hafa orðið fyrir ofbeldi á heimilinu. Hann frábiður sér samanburð við vistheimili barna frá miðri 20. öld og segir umræðuna drifna af andstæðingum uppbyggingar hans á svæðinu. 13. apríl 2026 kl. 21:14ÍÞRÓTTIR Körfubolti Kefla­vík tryggði sér odda­leik við KR Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Keishana Washington. RÚV / Mummi Lú Keflavík rótburstaði KR 101-65 í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta í kvöld. Þar með jafnaði Keflavík stöðuna í unnum leikjum í einvígi liðanna í 2-2 og því þarf oddaleik til að skera úr um það hvort liðið kemst í undanúrslit. Grindavík, Haukar og Njarðvík hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Keishana Washington skoraði flest stig Keflavíkurkvenna í leiknum í kvöld eða 19, auk þess tók hún níu fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Hún var því aðeins einu frákasti frá þrefaldri tvennu. Oddaleikur Keflavíkur og KR verður spilaður á fimmtudagskvöld á heimavelli KR-kvenna í Frostaskjóli. 13. apríl 2026 kl. 20:55ÍÞRÓTTIR Enski boltinn Mik­il­væg­ur sigur Leeds á Manchest­er United Leeds fjarlægist fallsvæðið í ensku úrvalsdeildinni eftir sigur á Manchester United í kvöld. Leeds vann viðureign liðanna 2-1. Noah Okafor skoraði bæði mörk Leeds. 13. apríl 2026 kl. 20:42ÍÞRÓTTIR Handbolti Valur flaug í úrslit annað árið í röð Valsmenn eru komnir í úrs

Share this article